Auglýsing

Haraldur Franklín Magnús, GR, er á meðal keppenda á Open de Bretagne mótinu sem fram fer á
Golf Blue Green í Pléneuf í Frakklandi.

Mótið er hluti af Challenge Tour, Áskorendamótaröðinni, sem er næst sterkasta atvinnumótaröð í karlaflokki í Evrópu.

Haraldur er í 100. sæti á stigalista mótaraðarinnar. Í lok tímabilsins komast 45 efstu inn á lokamótið sem fram fer á Mallorca á Spáni. Að því móti loknu fá 20 efstu á stigalistanum keppnisrétt á DP World Tour – sem er í efsta styrkleikaflokki atvinnumótaraða í karlaflokki í Evrópu.

Mótið í Frakklandi er fimmta mót tímabilsins hjá Haraldi Franklín á mótaröðinni. Hann hefur leikið á 51 móti á þessari mótaröð frá árinu 2018. Besti árangur hans er 2. sætið og hann hefur einnig endað í þriðja sæti.

Hann endaði í 19. sæti á Kaskáda Golf Challenge mótinu sem fram fór á Kaskáda Golf Resort, Brno, í Tékklandi. Þar lék hann á -3 samtals.

Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit á mótinu í Frakklandi:

Haraldur Franklín Magnús. Mynd/Grímur Kolbeinsson.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ