Haraldur Franklín og Kristjana Arnarsdóttir. Mynd/seth@golf.is
Auglýsing

Haraldur Franklín Magnús, GR eru á meðal keppenda á Empordà Challenge mótinu sem fram fer á samnefndum velli við borgina Girona á Spáni. Mótið er hluti af Áskorendamótaröðinni, Challenge Tour, sem er í næst efsta styrkleikaflokki á eftir sjálfri DP Evrópumótaröðinni.

Mótið hófst í dag fimmtudaginn 9. júní og verða leiknir fjórir hringir á fjórum keppnisdögum.

Haraldur Franklín fór beint til Spánar eftir að hafa tekið þátt á úrtökumóti fyrir US Open risamótið s.l. mánudag, 6. júní. Þar var hann hársbreidd frá því að komast inn á risamótið en hann lék í átta manna bráðabana um 3 laus sæti á risamótinu.

Nánari upplýsingar um mótið, rástímar, staða og úrslit:

Á þessu tímabili hefur Haraldur Franklín leikið á sjö mótum á Áskorendamótaröðinni. Hann hefur komist í gegnum niðurskurðinn á tveimur mótum og hann nálægt var nálægt sigri á einu þeirra og endaði í 3. sæti.

Haraldur Franklín er í 39. sæti á stigalistanum.

Í fyrra endaði Haraldur Franklín í 48. sæti á stigalistanum og var hársbreidd frá því að komast inn á lokamót Áskorendamótaraðarinnar þar sem að 45 efstu keppendurnir kepptu um 20 efstu sætin sem tryggðu þeim keppnisrétt á sjálfri Evrópumótaröðinni. Haraldur Franklín lék á alls 19 mótum í fyrra og fékk alls 35,816 stig.

Guðmundur Ágúst Kristjánsson er ekki á meðal keppenda á þessu móti.

Aðeins tveir kylfingar frá Íslandi hafa komist inn á lokamót Áskorendamótaraðarinnar – Birgir Leifur Hafþórsson og Guðmundur Ágúst Kristjánsson.

Guðmundur Ágúst endaði í 46. sæti árið 2020.

Birgir Leifur endaði í 35. sæti árið 2017.

Áskorendamótaröðin var sett á laggirnar árið 1989. Frá þeim tíma hafa margir þekktir kylfingar nýtt sér mótaröðina sem stökkpall inn á Evrópumótaröðina – DP Tour. Þar má nefna Thomas Bjørn (1995), Justin Rose (1999), Ian Poulter (1999), Henrik Stenson (2000), Louis Oosthuizen (2003), Tommy Fleetwood (2011) og Brooks Koepka (2013).

Stigalisti Áskorendamótaraðarinnar er hér:

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ