Golfsamband Íslands

Haraldur Franklín í toppbaráttunni á Challenge Tour móti í Suður-Afríku

Haraldur Franklín Magnús.

Haraldur Franklín Magnús, GR, hóf leik fimmtudaginn 8. febrúar á atvinnumóti sem fram fer í Suður-Afríku.

Mótið er hluti af Challenge Tour mótaröðinni, sem er í næst efsta styrkleikaflokki atvinnumótaraða í karlaflokki í Evrópu.

Mótið heitir Bain’s Whisky Cape Town Open og fer það fram á Royal Cape Golf Club, í Höfðaborg.

Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit:

Haraldur Franklín lék mjög vel á öðrum hringnum í dag eða 6 höggum undir pari vallar, 66 höggum. Hann fór upp um 23 sæti og er þessa stundina jafn í efsta sæti á -9 samtals (69-66).

Haraldur Franklín lék í síðustu viku á SDC Open sem fram fór á Zebula golfsvæðinu við borgina Limpopo í Suður-Afríku. Þar komst Haraldur Franklín ekki í gegnum niðurskurðinn en mótið var einnig hluti af Challenge Tour.

Dagana 15.-18. febrúar keppir Haraldur Franklín á þriðja mótinu í röð á Challenge Tour atvinnumótaröðinni. Það mót heitir Dimension Data Pro-Am og fer það fram á Fancourt golfsvæðinu við borgina George í Suður-Afríku.

Exit mobile version