Gunnlaugur Árni Sveinsson hefur lokið leik á U.S. Open risamótinu, sem fer fram á hinum sögufræga Shinnecock Hills Golf Club í New York.
Hér má fylgjast með skori mótsins
Gunnlaugur hóf leik eldsnemma í morgun til að klára fyrri hring sinn, en hann náði einungis að klára fjórtán holur í gær áður en sólin var sest. Leikur hófst á ný kl. 06:35, og hvíldin því lítil fyrir menn sem spiluðu til kl. 20:30 kvöldið áður.
Mikill vindur var á vellinum í morgun og aðstæður því áfram erfiðar.
Teighöggið á fimmtándu holunni fór út fyrir vallarmörk og var Gunnlaugur oft í vandræðum af teig. Eftir frábæra björgun úr glompu og par á átjándu skilaði Gunnlaugur inn skori upp á 84 högg, fjórtán yfir pari.

Lítil sem engin pása var á milli hringja, en um 40 mínútur liðu frá því að Gunnlaugur og félagar kláruðu leik, og þar til þeir voru farnir af stað aftur.
Áfram héldu vandræðin af teig og var Gunnlaugur sex yfir pari á fyrstu átta holum sínum. Eftir það hrökk okkar maður í töluvert betri gír. Teighöggin fóru að hitta brautina, hann kom sér í góða sénsa á fuglum og bjargaði sér vel þegar vandræðin bönkuðu uppá.
Gunnlaugur lék síðustu tíu holurnar á einu höggi yfir pari, fékk þar tvo skolla og einn frábæran fugl eftir að hafa slegið annað högg sitt á fjórðu holu yfir áhorfendur og hús sem stóð á milli brauta.

Gunnlaugur endaði mótið í 155. sæti á tuttugu og einu höggi yfir pari. Þrátt fyrir erfiðleika og mótlæti eru allir stoltir af okkar manni og hans frammistöðu í mótinu. Gunnlaugur og Bjarki báru sig vel allan tímann og geta gengið stoltir frá borði. Fyrsta stórmótið í höfn.



