Gunnlaugur Árni Sveinsson, GKG, verður á meðal keppenda í lokaúrtökumóti fyrir The Open, eða Opna mótið, á West Lancashire vellinum í dag. Þar leika 72 kylfingar um fimm laus sæti á risamótinu, sem fer fram á Royal Birkdale í júlí.
Gunnlaugur mætir til leiks skömmu eftir sögulega þátttöku sína á U.S. Open, þar sem hann varð fyrsti íslenski karlkylfingurinn til að leika á mótinu. Hann vann sér inn sæti á U.S. Open í gegnum lokaúrtökumót í Ohio og kemur því inn í næsta stóra verkefni með dýrmæta reynslu af löngum úrtökudegi þar sem lítið má út af bregða.
„Tíminn heima var mjög góður og nauðsynlegur. Það var gott að fá smá hvíld, þó hún hafi ekki verið mikil, og fá smá reset. Það var líka gott að fá góðan tíma með þjálfurunum mínum og reyna, eins vel og við gátum, að koma hlutum í lag sem voru kannski aðeins úr jafnvægi.
Mér líður mjög vel með þá hluti sem ég lagði mikla áherslu á á meðan ég var heima og ég tek mikið sjálfstraust með mér inn í þetta úrtökumót eftir að hafa komist inn á U.S. Open,“ segir Gunnlaugur.
Gunnlaugur hefur áður reynt fyrir sér í lokaúrtökumóti fyrir Opna mótið og segir þá reynslu, ásamt nýlegri reynslu úr úrtökumótinu fyrir U.S. Open, skipta miklu máli.
„Já, auðvitað er mikil reynsla sem ég tek með mér, bæði frá því í fyrra þegar ég náði ekki í gegn og svo núna um daginn þegar ég komst í gegnum úrtökumótið fyrir U.S. Open.
Það sem ég legg mesta áherslu á er að borða og drekka vel og hafa gaman. Þetta er svo langur dagur og það eru sterkir leikmenn sem maður er að spila á móti. Ef maður leggur of mikla áherslu á ranga hluti þá tæmir það batteríin mjög hratt.
Þannig að þetta snýst um að borða vel, drekka vel, halda orkustiginu góðu og sýna þolinmæði. Svo sjáum við hvað það gefur okkur,“ segir Gunnlaugur.
West Lancashire er klassískur links-völlur og útlit er fyrir krefjandi aðstæður. Vindur og væta gætu sett mark sitt á daginn, en Gunnlaugur segir lykilinn vera að halda hlutunum einföldum.
„Völlurinn leggst vel í mig. Ég spilaði hann í dag og það var gott að hafa Andra á pokanum, sem þekkir völlinn vel eftir að hafa verið á svæðinu á Opna breska áhugamannamótinu hér um daginn.
Lykillinn á svona velli er að halda boltanum fyrir framan sig. Það verður mikill vindur og það gæti líka rignt á morgun, þannig að þetta snýst allt um að halda boltanum í stjórn. Ef okkur tekst það og púttin fara að detta, þá koma skorin.
Annars snýst þetta bara um að gera hlutina einfalda og slá boltann á rétta staði, bæði af teig og inn á flatirnar,“ segir Gunnlaugur.

Gunnlaugur hefur leik klukkan 08:35 að staðartíma og fer út á seinni hringinn klukkan 14:20. Hann leikur með Masters-meistaranum Danny Willett og PGA Tour-leikmanninum Matt Wallace.
Fimm efstu kylfingarnir á West Lancashire tryggja sér sæti á The Open.




