Auglýsing

Atvinnukylfingarnir Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr Keili og Valdís Þóra Jónsdóttir úr Leyni keppa báðar á úrtökumóti fyrir Opna bandaríska meistaramótið.

Keppt er á Buckinghamshire vellinum á Englandi 14. maí n.k. og verða leiknar 36 holur. Fjórir efstu kylfingarnir tryggja sér keppnisrétt á risamótinu sem fram fer í  Shoal Creek í Alabama í Bandaríkjunum dagana 29. maí – 3. júní

Alls eru 78 keppendur á þessu úrtökumóti. Valdís Þóra endaði í 3.-5. sæti á þessu móti í fyrra. Tveir efstu kylfingarnir í mótinu komust beint inn á Opna bandaríska. Valdís komst í þriggja manna bráðabana um tvö laus sæti til viðbótar – en þar náði hún ekki í gegn.

Valdís Þóra komst síðan inn í mótið sem fyrsti varamaður frá Evrópu á biðlista fyrir mótið. Hún lék því fyrst allra íslenskra kylfinga á Opna bandaríska meistaramótinu í fyrrra.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ