Auglýsing

Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK, og Ragnhildur Kristinsdóttir, GR, keppir báðar á 1. stigi úrtökumótsins fyrir LET Evrópumótaröðina – sem er í efsta styrkleikaflokki atvinnumótaraða í Evrópu í kvennaflokki.

Keppt er á 1. stigi úrtökumótsins dagana 10.-13. desember og er leikið á tveimur völlum á Real Golf La Manga Club á Spáni. Úrtökumótið fyrir LET Evrópumótaröðina hefur farið fram á Norður- og Suður völlunum á La Manga.

Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit.

Ragnhildur var á +4 samtals eftir fyrstu tvo hringina sem hún lék á 71-77 höggum. Hún var í sæti nr. 33-44 þegar keppni var hálfnuð.

Guðrún Brá lék fyrstu tvo hringina á +5 samtals, 72-77, og er hún í sæti nr. 44.-54. þegar keppni er hálfnuð.

Alls eru 156 keppendur á 1. stigi úrtökumótsins og komast 62 efstu áfram inn á lokaúrtökumótið. Keppendur sem eru jafnir í sæti nr. 62 komast inn á lokaúrtökumótið.

Þetta verður í fyrsta sinn sem Ragnhildur reynir fyrir sér á úrtökumótinu fyrir LET Evrópumótaröðina. Hún reyndi fyrir sér á 1. stigi úrtökumótsins fyrir LPGA mótaröðina í Bandaríkjunum fyrr á þessu ári – en náði ekki að komast áfram inn á 2. stig úrtökumótsins.

Guðrún Brá tryggði sér keppnisrétt á LET mótaröðinni árið 2020 þar sem hún hefur keppt á undanförnum tveimur árum. Hún náði ekki að halda keppnisrétti sínum eftir tímabilið í ár -og er því mætt til að ná keppnisréttinum á ný.

Keppt er á tveimur stöðum á fyrra stigi úrtökumótsins fyrir LET Evrópumótaröðina. Dagana 11.-14. október s.l. var keppt í Asíu þar sem að 9 keppendur komust áfram inn á lokaúrtökumótið sem fram fer á La Manga dagana 17.-21. desember.

Á lokaúrtökumótinu má gera ráð fyrir að keppendur verði um 130 en í fyrra fengu 23 efstu keppendurnir keppnisrétt á LET Evrópumótaröðinni. Gera má ráð fyrir að svipaður fjöldi fái keppnisrétt eftir lokaúrtökumótið 2022.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ