Auglýsing

Golfsamband Íslands hefur valið kylfinga ársins 2020.

Þeir eru Guðrún Brá Björgvinsdóttir, Golfklúbbnum Keili, og Guðmundur Ágúst Kristjánsson úr Golfklúbbi Reykjavíkur.

Þetta er í 23. skipti þar sem tveir einstaklingar eru valdir sem kylfingar ársins hjá GSÍ, kona og karl. Þetta er í fyrsta sinn sem Guðrún Brá fær þessa viðurkenningu. Guðmundur Ágúst fékk þessa viðurkenningu í fyrsta sinn í fyrra og er þetta því í annað sinn sem hann er kylfingur ársins.

Árið 1973 var fyrsta kjörið hjá GSÍ á kylfingi ársins en frá árinu 1998 hefur karl og kona verið valin sem kylfingar ársins.

Birgir Leifur Hafþórsson hefur oftast verið kjörinn kylfingur ársins í karlaflokki eða alls 11 sinnum. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er sú sem oftast hefur fengið þessa viðurkenningu hjá konunum eða alls sex sinnum.

Guðrún Brá Björgvinsdóttir

Guðrún Brá er fædd árið 1994 og hefur alla tíð leikið fyrir Golfklúbbinn Keili í Hafnarfirði. Hún gerðist atvinnukylfingur árið 2018 er með keppnisrétt á LET Evrópumótaröðinni – sem er sterkasta atvinnumótaröð í kvennaflokki í Evrópu. Guðrún Brá er fjórða konan frá Íslandi sem tryggir sér keppnisrétt á LET Evrópumótaröðinni. Ólöf María Jónsdóttir, Ólafía Þórunn Kristinsdóttir og Valdís Þóra Jónsdóttir hafa einnig verið með keppnisétt á LET.

Á árinu 2020 lék Guðrún Brá á alls 11 atvinnumótum. Hún keppti á þremur mótum á LET Access mótaröðinni sem er næst sterkasta atvinnumótaröðin í Evrópu í kvennaflokki. Besti árangur hennar á LET Access var 14. sæti. Á sjálfri LET Evrópumótaröðinni lék hún á alls 8 mótum og besti árangur hennar var 39. sæti. Guðrún Brá verður með keppnisrétt á LET Evrópumótaröðinni á næsta ári. Hún sigraði á Íslandsmótinu í golfi 2020 í þriðja sinn í röð og alls hefur hún landað þremur Íslandsmeistaratitlum. Aðeins fimm konur hafa sigrað á Íslandsmótinu í golfi þrjú ár í röð og er Guðrún Brá ein þeirra.

Á heimslistanum hefur Guðrún Brá farið upp um tæplega 200 sæti á þessu ári en hún er í sæti nr. 861 á heimslistanum.

25/02/2020. Ladies European Tour 2020. Women’s New South Wales Open. Dubbo Golf Club, Dubbo, New South Wales, Australia. Feb 27-Mar1 2020 Gudrun Bjorgvinsdottir of Iceland during a practice round. Credit: Tristan Jones

„Það er ánægjulegt og mikill heiður að fá þessa útnefningu í fyrsta sinn á ferlinum. Árið 2020 var undarlegt ár – þar sem að nánast allar áætlanir fóru út um þúfur vegna Covid-19 faraldursins. Ég byrjaði árið á því að ná aðalmarkmiðinu, að fara á lokaúrtökumótið og komast inn á LET Evrópumótaröðina. Það tókst og er í raun hápunktur ársins 2020. Það var mikil spenna og eftirvænting hjá mér að leika heilt tímabil á LET og keppnisdagskráin var þétt og áhugverð. Það var svekkjandi fyrir alla að Covid ástandið setti allt keppnishaldið á hliðina og úr skorðum. Óvissan hefur því verið mikil frá því í vor og tekið á andlegu hliðina. Ég hef reynt að vera eins tilbúin og hægt er, vera klár þegar mót hafa verið sett á með stuttum fyrirvara. Ég hef líka reynt að horfa á þetta ástand með jákvæðu hugarfari. Ég fékk tækifæri til að spila á nokkrum LET mótum, og ég veit því hvað ég þarf að gera til að ná enn lengra. Covid-19 ástandið hefur gert það að verkum að ég hef fengið tækifæri til að vinna í hlutum sem ég hef aldrei haft tíma til að vinna í á venjulegu keppnistímabili. Ég er bjartsýn fyrir næsta ár og ég ætla mér að koma sterkari til leiks. Íslandsmótið 2020 var einnig einn af hápunktum ársins 2020. Það var mikil spenna á lokaholunum og ég var ánægð með sjálfa mig að hafa klárað það mót við þær aðstæður,“ segir Guðrún Brá Björgvinsdóttir.

Guðmundur Ágúst Kristjánsson

Guðmundur Ágúst er fæddur árið 1991 og er í Golfklúbbi Reykjavíkur. Frá árinu 2017 hefur hann verið atvinnukylfingur. Á árinu 2020 var Guðmundur Ágúst með keppnisrétt á næst sterkustu atvinnumótaröð Evrópu, Challenge Tour en aðeins sex íslenskir kylfingar hafa öðlast keppnisrétt á Áskorendamótaröðinni. Birgir Leifur Hafþórsson, Axel Bóasson, Guðmundur Ágúst Kristjánsson, Haraldur Franklín Magnús, Bjarki Pétursson og Andri Þór Björnsson.

Guðmundur Ágúst endaði í 46. sæti á stigalistanum sem er næst besti árangur hjá íslensku atvinnukylfingi á Áskorendamótaröðinni (Challenge Tour).

Besti árangur hans var á móti sem fram fór á Norður-Írlandi þar sem að Guðmundur Ágúst endaði í 5. sæti. Nánar hér. Guðmundur Ágúst hefur farið hratt upp heimslistann á undanförnum misserum. Frá árinu 2017 hefur hann farið upp um 1500 sæti en hann var í sæti nr. 510 á heimslistanum þessa.

„Það er mikill heiður að fá þessa viðurkenningu annað árið í röð. Tímabilið var ágætt að mörgu leyti og frábært að vera í hópi þeirra 45 sem fengu tækifæri að leika á lokamótinu á Mallorca. Helstu vonbrigðin var að enda ekki hærra á peningalistanum eftir að hafa komið mér í góða stöðu á mótinu sem fram fór í Portúgal. Það sem stendur upp úr á árinu er árangurinn á mótinu á Norður-Írlandi þar sem ég var ekki langt frá verðlaunasæti og einnig að komast inn á lokamótið. Ég ætla að mæta tvíefldur á næsta ári eftir þetta undarlega ár og gera enn betur,“ segir Guðmundur Ágúst Kristjánsson.



Árið 1973 var fyrsta kjörið hjá GSÍ á kylfingi ársins. Birgir Leifur Hafþórsson hefur oftast verið kjörinn kylfingur ársins í karlaflokki eða alls 11 sinnum. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er sú sem oftast hefur fengið þessa viðurkenningu hjá konunum eða alls sex sinnum.

Kylfingar ársins frá upphafi:

1973Björgvin ÞorsteinssonGA1
1974Sigurður ThorarensenGK1
1975Ragnar ÓlafssonGR1
1976Þorbjörn KjærboGS1
1977Björgvin ÞorsteinssonGA2
1978Gylfi KristinssonGS1
1980Hannes EyvindssonGR1
1981Ragnar ÓlafssonGR2
1982Sigurður PéturssonGR1
1983Gylfi KristinssonGS2
1984Sigurður PéturssonGR2
1985Sigurður PéturssonGR3
1986Úlfar JónssonGK1
1987Úlfar JónssonGK2
1988Úlfar JónssonGK3
1989Úlfar JónssonGK4
1990Úlfar JónssonGK5
1991Karen SævarsdóttirGS1
1992Úlfar JónssonGK6
1993Þorsteinn HallgrímssonGV1
1994Sigurpáll Geir SveinssonGA1
1995Björgvin SigurbergssonGK1
1996Birgir Leifur HafþórssonGL1
1997Birgir Leifur HafþórssonGL2
1998Björgvin SigurbergssonGK2Ragnhildur SigurðardóttirGR1
1999Örn Ævar HjartarsonGS1Ólöf María JónsdóttirGK1
2000Björgvin SigurbergssonGK3Ragnhildur SigurðardóttirGR2
2001Örn Ævar HjartarsonGS2Herborg ArnardóttirGR1
2002Sigurpáll Geir SveinssonGA2Ólöf María JónsdóttirGK2
2003Birgir Leifur HafþórssonGKG3Ragnhildur SigurðardóttirGR3
2004Birgir Leifur HafþórssonGKG4Ólöf María JónsdóttirGK3
2005Heiðar Davíð BragasonGKj.1Ólöf María JónsdóttirGK4
2006Birgir Leifur HafþórssonGKG5Nína Björk GeirsdóttirGKj.1
2007Birgir Leifur HafþórssonGKG6Nína Björk GeirsdóttirGKj.2
2008Hlynur Geir HjartarsonGOS1Ólöf María JónsdóttirGK5
2009Ólafur Björn LoftssonNK1Valdís Þóra JónsdóttirGL1
2010Birgir Leifur HafþórssonGKG7Tinna JóhannsdóttirGK1
2011Ólafur Björn LoftssonNK1Ólafía Þórunn KristinsdóttirGR1
2012Haraldur Franklín MagnúsGR1ÓIafía Þórunn KristinsdóttirGR2
2013Birgir Leifur HafþórssonGKG8Sunna VíðisdóttirGR1
2014Birgir Leifur HafþórssonGKG9Ólafía Þórunn KristinsdóttirGR3
2015Birgir Leifur HafþórssonGKG10Ólafía Þórunn KristinsdóttirGR4
2016Birgir Leifur HafþórssonGKG11Ólafía Þórunn KristinsdóttirGR5
2017Axel BóassonGK1Ólafía Þórunn KristinsdóttirGR6
2018Haraldur Franklín MagnúsGR2Valdís Þóra JónsdóttirGL2
2019Guðmundur Ágúst KristjánssonGR1Valdís Þóra JónsdóttirGL3
2020Guðmundur Ágúst KristjánssonGR2Guðrún Brá BjörgvinsdóttirGK1

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ