Site icon Golfsamband Íslands

Guðrún Brá hefur leik í dag á LET mótaröðinni í Frakklandi

Guðrún Brá Björgvinsdóttir. Mynd Mark Runnacles / LET

Guðrún Brá Björgvinsdóttir, atvinnukylfingur úr Keili í Hafnarfirði, keppir í þessari viku á Golf du Medoc mótinu sem fram fer á Chateaux vellinum í Frakklandi.

Mótið er hluti af LET Evrópumótaröð kvenna – sem er í efsta styrkleikaflokki atvinnumótaraða í Evrópu.

Smelltu hér fyrir rástíma, skor og úrslit:

Guðrún Brá endaði í 47. sæti á svissneska meistaramótinu sem fram fór á Holzhäusern vellinum í Sviss í síðustu viku en það mót var einnig hluti af LET Evrópumótaröðinni.

Mótið í Frakklandi í þessari viku er 14. mótið hjá Guðrúnu Brá á tímabilinu. Besti árangur hennar er 12. sæti á þessu tímabili og sá næstbesti er 13. sæti.

Guðrún Brá er í 76. sæti á stigalista LET Evrópumótaraðarinnar. Til samanburðar þá endaði Guðrún Brá í sæti nr. 127 á stigalistanum á sínu fyrsta keppnistímabili á LET Evrópumótaröðinni í fyrra.

Það eru 5 mót eftir á keppnistímabilinu á LET Evrópumótaröðinni.

Exit mobile version