Auglýsing

Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GKG, og Haraldur Franklín Magnús, GR eru báðir á meðal keppenda á Challenge de España mótinu sem fram fer á Iberostar Real Club de Golf í Novo Sancti Petri á Spáni. Mótið er hluti af Áskorendamótaröðinni, Challenge Tour, sem er í næst efsta styrkleikaflokki á eftir sjálfri DP Evrópumótaröðinni. Mótið hefst fimmtudaginn 19. maí og verða leiknir fjórir hringir á fjórum keppnisdögum.

Á þessu tímabili hefur Haraldur Franklín leikið á fimm mótum á Áskorendamótaröðinni. Hann hefur komist í gegnum niðurskurðinn á einu móti og þar var hann nálægt sigri og endaði í 3. sæti. Haraldur Franklín er í 20. sæti á stigalistanum. Í fyrra endaði Haraldur Franklín í 48. sæti á stigalistanum og var hársbreidd frá því að komast inn á lokamót Áskorendamótaraðarinnar þar sem að 45 efstu keppendurnir kepptu um 20 efstu sætin sem tryggðu þeim keppnisrétt á sjálfri Evrópumótaröðinni. Haraldur Franklín lék á alls 19 mótum í fyrra og fékk alls 35,816 stig.

Guðmundur Ágúst hefur leikið á fimm mótum á þessu tímabili á Áskorendamótaröðinni og komist í gegnum niðurskurðinn á tveimur þeirra. Besti árangur hans er 11. sæti og hann hefur einnig endað í 14. sæti. Guðmundur Ágúst fór er í sæti nr. 98 þessa stundina á stigalista Áskorendamótaraðarinnar.

Aðeins tveir kylfingar frá Íslandi hafa komist inn á lokamót Áskorendamótaraðarinnar – Birgir Leifur Hafþórsson og Guðmundur Ágúst Kristjánsson.

Guðmundur Ágúst endaði í 46. sæti árið 2020.

Birgir Leifur endaði í 35. sæti árið 2017.

Áskorendamótaröðin var sett á laggirnar árið 1989. Frá þeim tíma hafa margir þekktir kylfingar nýtt sér mótaröðina sem stökkpall inn á Evrópumótaröðina – DP Tour. Þar má nefna Thomas Bjørn (1995), Justin Rose (1999), Ian Poulter (1999), Henrik Stenson (2000), Louis Oosthuizen (2003), Tommy Fleetwood (2011) og Brooks Koepka (2013).

Stigalisti Áskorendamótaraðarinnar er hér:

Að mótinu loknum á Spáni halda keppendur til Aberdeen í Skotlandi þar sem að Farmfoods Scottish Challenge fer fram á Newmachar golfvellinum dagana 26.-29. maí. Haraldur Franklín er á meðal keppenda á því móti en Guðmundur Ágúst er í 10. sæti á biðlista fyrir það mót. Nánar hér.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ