Golfsamband Íslands

Guðmundur Ágúst keppir á DP World Tour móti í Belgíu

Guðmundur Ágúst Kristjánsson, atvinnukylfingur úr GKG, er á meðal keppenda á DP World móti sem fram fer í Belgíu dagana 11.-14. maí.

Mótið heitir Soudal Open og fer fram á Rinkven International við borgina Antwerpen

Nánari upplýsingar um mótið í Belgíu, rástímar og staða – smelltu hér:

DP World Tour er sterkasta atvinnumótaröð Evrópu í karlaflokki. Guðmundur Ágúst tryggði sér keppnisrétt á DP World Tour s.l. haust á lokaúrtökumótinu.

Guðmundur Ágúst er í ráshóp með Gunner Wiebe frá Bandaríkjunum og Alan De Bondt frá Belgíu fyrstu tvo keppnisdagana. Þeir fóru út kl. 7 í morgun að íslenskum tíma og á öðrum keppnisdegi hefja þeir leik kl. 12:10 að íslenskum tíma.

Sýnt er frá mótinu á VIAPLAY.


Á þessu tímabili hefur Guðmundur Ágúst leikið á ellefu mótum á DP World Tour. Hann komst í gegnum niðurskurðinn á þremur mótum í röð sem er besti árangur sem íslenskur karlkylfingur hefur náð á mótaröð í efsta styrkleikaflokki í Evrópu.

Hann hefur nú fengið alls 37 stig og er í sæti nr. 196 á stigalistanum. Alls eru 278 keppendur á stigalistanum.

Á þessu tímabili hefur Guðmundur Ágúst fengið tæplega 23 þúsund Evrur í verðlaunafé eða sem nemur 3,6 milljónum kr.

Besti árangur hjá íslenskum kylfingi á DP World Tour er 11. sætið. Birgir Leifur Hafþórsson, GKG, varð í 11. sæti á Telecom Italia Open sem fram fór í maí árið 2007.

Exit mobile version