Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR, hefur leik í dag á Áskorendamótaröðinni í golfi.
Mótaröðin er sú næst sterkasta hjá atvinnukylfingum í Evrópu.
Mótið fer fram á Morgado vellinum í Portúgal en það golfsvæði hefur verið vinsælt hjá íslenskum kylfingum á undanförnum árum.
Mótið er sjötta mótið hjá Guðmundi Ágústi á þessu tímabili á Áskorendamótaröðinni. Besti árangur Íslandsmeistarans 2019 er 13. sætið.
![- Golfsamband Íslands](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2020/04/Screen-Shot-2019-09-12-at-10.41.07-AM-1024x355.png)