Golfsamband Íslands

GR Íslandsmeistari golfklúbba 18 ára og yngri í piltaflokki

Golfklúbbur Reykjavíkur, A-sveit, sigraði á Íslandsmóti golfklúbba í flokki pilta 18 ára og yngri. Úrslitin réðust á Strandarvelli í dag hjá Golfklúbbnum á Hellu.

GR (A) lék gegn A sveit Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar, GKG í úrslitaleiknum. Þar hafði GR betur 2-1.

Golfklúbbur Akureyrar og Golfklúbburinn Keilir léku um þriðja sætið og þar hafði Keilir betur 2-1.

Fleiri myndir hér:

Íslandsmeistarasveit GR-A.
Sveit GKG-A. Mynd/brynjar@golf.is
Sveit GA.

Heildarúrslit og staða

Exit mobile version