Auglýsing

Íslandsmót golfklúbba í aldursflokki 14 ára og yngri fór fram dagana 21.-23. júní og var leikið á Selsvelli hjá Golfklúbbnum á Flúðum. 

Alls tóku 7 stúlknalið þátt.

Keppnin hófst á að liðin léku 18 holu höggleik þar sem þrjú bestu skor liðsins töldu

Raðað var í riðla eftir stöðunni úr höggleiknum. 

Þá skiptist keppnin í holukeppnis og texas scramble fyrirkomulag eftir því í hvaða sæti lið lenti.

Úrslit úr höggleik má sjá hér fyrir STÚLKUR.

Golfklúbbur Kópavogs – og Garðabæjar sigraði og er Íslandsmeistari golfklúbba 2023 í stúlknaflokki 14 ára og yngri. Golfklúbbur Akureyrar varð í öðru sæti og Golfklúbbur Mosfellsbæjar í því þriðja. 

 

Golfklúbbur Akureyrar varð í öðru sæti. Mynd/AG
María Högnadóttir fór holu í höggi á 5. holu í höggleiknum á Selsvelli á Flúðum.

Stúlkur - staðan hjá liðum í keppni um 1. - 7. sæti (holukeppni)

Drengir - staðan hjá liðum í keppni um 1. - 8. sæti

Deildu:

Auglýsing
 
Auglýsing
 

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ