Fyrsta mótið á Eimskipsmótaröðinni 2016, Egils-Gullmótið, hófst í morgun á Strandarvelli á Hellu. Aðstæður eru góðar, bjartviðri, og útlit fyrir góða golfdaga hjá afrekskylfingum landsins. Keppni hófst kl. 7.30 í morgun en síðustu ráshópar dagsins fara út rétt eftir kl. 13 í dag.
Leiknar verða 54 holur á þremur keppnisdögum og verður keppendum fækkað eftir fyrstu tvo hringina. Skor keppenda verða uppfærð á mitt.golf.is/skor á meðan keppnin stendur yfir.
![- Golfsamband Íslands Strandarvöllur Hella, EgilsGullmótið Eimskipsmótaröð.](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2020/04/10404006_10152504109092904_2607398899771564092_o.jpg)
Rástímar á 1. keppnisdegi.