Auglýsing

Birgir Björnsson útskýrir af hverju golfhögg fá hliðarspuna

Gír áhrif („Gear Effect“) er hugtak sem útskýrir af hverju golfhögg fá hliðarspuna þegar boltinn er ekki sleginn á miðjan höggflöt golfkylfunnar. Ef við gerum ráð fyrir að massamiðja kylfuhauss sé í láréttri miðju hans, þá valda gír-áhrifin því að þau högg sem slegin eru hælmegin á höggflötinn eiga það til að fljúga með meiri slæs-spuna til hægri (hjá rétthentum kylfingi) og högg sem slegin eru támegin fljúga á sama hátt með húkk-spuna til vinstri.

Þetta þýðir þó ekki að öll högg sem eru slegin á tána muni taka á sig  húkk-spuna eða öfugt. Þeir sem sveifla t.d. mikið út-inn með opinn kylfuhaus þurfa ekki endilega að fá húkk ef þeir hitta á tána, því það nær ekki að yfirvinna slæs-spunann sem þeir mynda með sinni aðferð.

Ef golfhögg er slegið á tá eða hæl höggflatarins, þ.e. ekki í beinni stefnu við massamiðju hans, þá myndast snúningsátak og kylfuhausinn snýst hratt um sína massamiðju.

Séu högg slegin á tána snýst kylfuhausinn opinn og gagnstæður snúningur myndast á golfboltann – húkk-spuni til vinstri. Séu högg slegin á hælinn lokast kylfuhausinn um leið og hann loðir við boltann og slæs-spuni myndast. Þetta gerist þar sem boltinn rúllar örlítið í gagnstæða átt við snúningshreyfingu haussins, eins og ef tannhjól væri á höggfletinum og golfboltanum.

Þetta er einnig ástæðan fyrir því að höggflötur á „trékylfum“ er ekki sléttur, heldur er hann kúptur bæði lárétt (rúll/„Roll“) og lóðrétt (bunga/„Bulge“).

Þessi lögun á höggfletinum gerir það að verkum að táin er opnari en miðjan og hællinn lokaðri.

Högg sem slegin eru á tána byrja því lengra til hægri til að vega á móti gíráhrifunum sem mynda snúning aftur til baka til vinstri. Hið gagnstæða á við um hælinn. Hann vísar lengra til vinstri til að vega á móti slæs-snúningi til hægri. Þessi áhrif verða líka lóðrétt, þ.e. högg sem eru slegin ofarlega á höggflötinn hafa minni bakspuna en högg sem eru slegin neðarlega.

Því lengra aftur sem massamiðjan er frá höggfletinum, því meiri verða gír-áhrifin.

Massamiðja í járnhaus er ekki langt aftur frá höggfletinum, en í stórum driver-haus er hún komin nokkuð langt frá höggfletinum, að aftanverðu. Gír-áhrifin eru því talsverð í driver og „trékylfum“ en hverfandi í flestum járnakylfum og því er stefna og flái hverrar járnkylfu hinn sami alls staðar á höggfletinum.

Birgir V. Björnsson
Golfkylfur.is / Kylfusmiður / ÍAK einkaþjálfari / Golfkennari

 

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ