Auglýsing

Pressuliðið hafði betur gegn landsliðinu í KPMG-bikarnum sem fram fór við frábærar aðstæður á Grafarholtsvelli í dag. Þar áttust við úrvalslið áhuga – og atvinnukylfinga og landsliðin sem valin voru fyrir verkefnin á Evrópumótunum sem fram fara í byrjun júlí. Keppendur léku vel við góðar aðstæður og sumarbúðirnar í Reykjadal nutu góðs af því.

Keppnisfyrirkomulagið í KPMG-bikarnum er sótt í hefðir Ryderkeppninnar og leikinn var holukeppni. Sex fjórmenningsleikir fóru fram þar sem tveir voru saman í liði og léku þeir einum bolta til skiptis. Fimm tvímenningsleikir fóru fram þar sem tveir kylfingar áttust við.

Pressuliðið hafði betur 6 ½ – 4 ½.

Fyrir hvern fugl í KPMG-bikarnum rann ákveðinn upphæð til styrktar sumarbúðunum í Reykjadal. Alls safnaðist ein milljón kr. en keppendur náðu alls 79 fuglum. Margrét Vala Marteinsdóttir tók við fjárhæðinni fyrir hönd Reykjadals. Síðast þegar slíkt var gert í KPMG-bikarnum safnaðist rúmlega hálf milljón kr.

Árlega koma um 300 börn og ungmenni í Reykjadal yfir tímabil sem spannar sumarið og helgardvalir á veturna. Sumarbúðirnar hafa það að leiðarljósi að gefa þeim börnum og ungmennum sem þurfa sérstaka þjónustu vegna fötlunar tækifæri til að komast í sumarbúðir líkt og ófatlaðir jafnaldrar þeirra.
Landslið ı Pressulið – úrslit:
4 ½ – 6 ½

Leikur 1.  Fjórmenningur.
Landslið Hlynur Bergsson GKG – Tumi Hrafn Kúld GA. 2/1 sigur.
Pressulið: Hákon Örn Magnússon GR – Sigurþór Jónsson.

Leikur 2. Fjórmenningur.
Landslið: Björn Óskar Guðjónsson GM –  Henning Darri Þórðarson GK. 2/0 sigur.
Pressulið: Emil Þór Ragnarsson GKG – Birgir Björn Magnússon GK.

Leikur 3. Tvímenningur.
Landslið: Gísli Sveinbergsson GK.
Pressulið: Egill Ragnar Gunnarssons GKG. 3/2 sigur.

Leikur 4. Fjórmenningur.
Landslið: Ragnhildur Kristinsdóttir GR – Anna Sólveig Snorradóttir GK. 6/4 sigur.
Pressulið: Berglind Björnsdóttir GR –  Saga Traustadóttir GR.

Leikur 5. Fjórmenningur.
Landslið: Karen Guðnadóttir GS – Heiða Guðnadóttir GM.
Pressulið: Gunnhildur Kristjánsdóttir GKG – Helga Kristín Einarsdóttir NK. 2/1 sigur.

Leikur 6. Fjórmenningur.
Landslið: Haraldur Franklín Magnús GR – Andri Þór Björnsson GR. 1/0 sigur.
Pressulið: Stefán Már Stefánsson GR – Benedikt Sveinsson GK.

Leikur 7. Fjórmenningur.
Landslið: Axel Bóasson GK –  Rúnar Arnórsson GK.
Pressulið: Aron Snær Júlíusson GKG –  Ólafur Björn Loftsson GKG 2/1 sigur

Leikur 8. Tvímenningur.
Landslið: Sunna Víðisdóttir GR.
Pressulið: Signý Arnórsdóttir GK. 6/5 sigur.

Leikur 9. Tvímenningur.
Landslið: Kristján Þór Einarsson GM.
Pressulið: Þórður Rafn Gissurarson GR 6/5 sigur.

Leikur 10. Tvímenningur.
Landslið: Guðrún Brá Björgvinsdóttir GK. jafnt.
Pressulið: Valdís Þóra Jónsdóttir GL. jafnt.

Leikur 11. Tvímenningur.
Landslið: Guðmundur Ágúst Kristjánsson GR.
Pressulið: Birgir Leifur Hafþórsson GKG  5/3 sigur.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ