Skýringarmynd frá staðsetningu á nýrri íþróttamiðstöð GM.
Auglýsing

Frétt af heimasíðu Golfklúbbs Mosfellsbæjar.

Í dag, þann 1. apríl kl. 16.00, verða tímamót í starfsemi Golfklúbbs Mosfellsbæjar þegar tekin verður fyrsta skóflustungan að nýrri íþróttamiðstöð við Hlíðavöll.  Markar þetta upphaf framkvæmda við húsið en þá verður einnig skrifað verður undir saminga við jarðverktaka. Á mánudaginn verða síðan opnuð tilboð í uppsteypu hússins sem auglýst var um síðustu helgi.

Nánar hér.

Skóflustunguna munu börn og ungmenni í GM annast undir handleiðslu Sigurpáls Geirs Sveinsonar íþróttastjóra GM. Þegar miðstöðin verður fullbúin mun verða til fyrsta flokks aðstaða fyrir börn og ungmenni í Mosfellsbæ til að æfa sína íþrótt á heilsársgrunni í bæjarfélaginu.

Að athöfn lokinni verður boðið upp á kaffisopa í vélaskemmu GM á Blikastaðanesi.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ