Golfsamband Íslands

Frábært háskólamót hjá Guðrúnu Brá – endaði í öðru sæti á -5 samtals

Guðrún Brá Björgvinsdóttir.

Guðrún Brá Björgvinsdóttir lék frábært golf á Fresno State Classic háskólamótinu í Bandaríkjunum sem lauk í vikunni. Guðrún Brá lék á -5 samtals og endaði í öðru sæti í einstaklingskeppninni en besta skorið var -8. 

Skólalið hennar Fresno State stóð uppi sem sigurvegari á þessu móti.

Lokastaðan:

Guðrún Brá, sem er úr GK í Hafnarfirði lék fyrri hringinn á -4 þar sem hún fékk fimm fugla og á síðari hringnum fékk hún fjóra fugla og lék á -1 samtals.

Screenshot (39)

 

 

 

 

Exit mobile version