Auglýsing

Nýlega lauk úthlutun úr Forskoti afrekssjóði kylfinga vegna ársins 2021 en þetta er jafnframt tíunda árið í röð þar sem úthlutað er úr sjóðnum til íslenskra afrekskylfingar. 

Fimm leikmenn fá úthlutað úr sjóðnum á árinu 2021 en þeir eru:
 

Bjarki Pétursson, GKG.
Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR.
Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK. 
Haraldur Franklín Magnús, GR.
Valdís Þóra Jónsdóttir, GL. 

Að sjóðnum standa fyrirtækin Eimskip, Valitor, Íslandsbanki, Icelandair Group, Vörður tryggingar, Bláa Lónið auk Golfsambands Íslands.

Bjarki Pétursson

Bjarki gerðist atvinnumaður á 2019. Hann komst inn á lokastig úrtökumótsins fyrir Evrópumótaröðina  2019 og náði þar með að að tryggja sér keppnisrétt á Áskorendamótaröðinni (Challenge Tour).

Hann var einnig með þátttökurétt á Nordic Tour á árinu 2020. Bjarki sigraði á Íslandsmótinu í golfi 2020 – í fyrsta sinn á ferlinum.

Bjarki, sem er fæddur árið 1994, er með keppnisrétt á Áskorendamótaröðinni 2021.   

Bjarki Pétursson. Mynd/seth@golf.is

Guðmundur Ágúst Kristjánsson

Guðmundur Ágúst gerðist atvinnumaður árið 2017. Guðmundur Ágúst var með með fullan þátttökurétt á Áskorendamótaröð Evrópu á árinu 2020. Hann lék alls á 11 mótum  og náði að komast inn á lokamót Áskorendamótaraðarinnar og hann endaði í 46. sæti stigalistans á næst sterkustu atvinnumótaröð í karlaflokki í Evrópu.

Árangur hans á mótaröðinni er sá næst besti hjá íslenskum kylfingi frá upphafi.

Guðmundur Ágúst, sem er fæddur árið 1992, er með keppnisrétt á Áskorendamótaröðinni 2021 en hann lék einnig á þremur mótum á árinu 2020 á sjálfri Evrópumótaröðinni – sterkustu atvinnumótaröð Evrópu í karlaflokki. 

Guðmundur Ágúst Kristjánsson. Mynd/ Arnaldur.

Guðrún Brá Björgvinsdóttir

Guðrún Brá, er fædd árið 1994, og er hún með keppnisrétt á LET Evrópumótaröðinni á árinu 2021. Hún lék á alls 11 atvinnumótum á árinu 2020 þar af voru 8 þeirra á LET Evrópumótaröðinni sem er sterkasta atvinnumótaröð í kvennaflokki í Evrópu.

Guðrún Brá varð Íslandsmeistari í golfi 2020 og var þetta þriðja árið í röð sem hún fagnar þeim titli.

Aðeins fimm konur hafa afrekað það að sigra þrívegis í röð á Íslandsmótinu í golfi í kvennaflokki. 

Guðrún Brá Björgvinsdóttir. Mynd/ Arnaldur.

Haraldur Franklín Magnús

Haraldur Franklín gerðist atvinnukylfingur árið 2017. Hann er með keppnsrétt á Áskorendamótaröðinni (Challenge Tour) á árinu 2021. Haraldur Franklín lék á alls 8 mótum á Áskorendamótaröðinni á árinu 2020. Besti árangur hans var 33. sæti og á stigalistanum varð Haraldur Franklín í 85. sæti.

Haraldur Franklín er fæddur árið 1991 og var tímabilið 2020 það fyrsta hjá honum á næst sterkustu atvinnumótaröð Evrópu í karlaflokki.

Haraldur Franklín Magnús. Mynd/ Arnaldur.

Valdís Þóra Jónsdóttir 

Valdís Þóra, er fædd árið 1989, og undanfarin fjögur ár hefur hún verið með keppnisrétt á sterkustu atvinnumótaröð Evrópu, LET Evrópumótaröðinni.

Meiðsli settu strik í keppnishaldið hjá Valdísi Þóru á árinu 2020 og hún lék á þremur mótum í upphafi ársins 2020.

Valdís Þóra  er með keppnisrétt á LET Evrópumótaröðinni 2021 og verður það fimmta tímabilið hennar á sterkustu atvinnumótaröð Evrópu í kvennaflokki. 

Valdís Þóra Jónsdóttir. Mynd/ Arnaldur Halldórsson.

Um sjóðinn: 

Frá því að Forskot afrekssjóður var stofnaður árið 2012 hefur slagkrafturinn hjá íslenskum atvinnukylfingum verið meiri en áður og samtakamáttur þeirra aðila sem koma að sjóðnum fleytt okkar bestu kylfingum inn á nýjar brautir. 

Ríkar kröfur eru gerðar til styrkþega um ráðstöfun styrkja og ber þeim að leggja fram æfinga- og keppnisáætlanir auk fjárhagsáætlunar fyrir öll verkefni auk þess sem gerðir eru sérstakir samningar við hvern afrekskylfing um að þeir virði reglur Íþrótta- og Ólympíuhreyfingarinnar og sjóðsins. 

Þeir kylfingar sem fá úthlutað eiga það sameiginlegt að vera sterkar fyrirmyndir og afreksfólk í fremstu röð. Það að eiga afreksmenn í íþróttum er mikilvægur þáttur í því að hvetja börn og unglinga til að sinna íþróttum og þannig stuðla að forvörnum og lýðheilsu.

Fyrirtækin sem koma að sjóðnum eru virkilega ánægð hvernig Íslenskt afreksgolf hefur þróast í stöðugri framför frá stofnun sjóðsins. Sjóðurinn hefur frá upphafi haft það að markmiði að styðja við þá atvinnukylfinga sem stefna á að komast í fremstu röð í íþróttinni og eru að stíga sín fyrstu skref. 

Einn fulltrúi frá hverju fyrirtæki sem aðild eiga að Forskoti situr í stjórn sjóðsins en auk þess hefur stjórn sjóðsins sér til ráðgjafar fagteymi sem leggur fram tillögur  um úthlutanir úr sjóðnum á ári hverju. 

Stjórn Forskots óskar öllum afrekskylfingum góðs gengis á árinu 2021.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ