GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

©golfmyndir.is
Auglýsing

Margir kylfingar sem eru ekki komnir í golfklúbba eru eflaust að velta fyrir sér hvar sé hagkvæmast að gerast meðlimur í golfklúbbi. Þegar vefsíður golfklúbba er skoðaðar er hægt að finna fjölbreytt tilboð varðandi aðild að golfklúbbi.

Framboðið hefur aldrei verið meira af mismunandi fyrirkomulagi aðildar. Allt frá fjaraðild til fullrar aðildar með yfir tuttugu vinavallargolfklúbbum inniföldum. Kylfingar þurfa því að skoða vel hvernig aðild hentar þeim best.

Lægstu gjöld fjaraðildar:

  • 14.900 kr. hjá Golfklúbbi Ásatúns. Innifalið GolfBox aðgangur og forgjafarskráning.
  • 32.850 kr. hjá Golfklúbbi Suðurnesja. Gildir aðeins fyrir kylfinga sem eru skráðir í annan golfklúbb og með lögheimili utan Suðurnesja.
  • 33.000 kr. hjá Golfklúbbnum Vestarr. Gildir aðeins fyrir kylfinga sem eru skráðir í annan golfklúbb.
  • 40.500 kr. Golfklúbburinn Hamar. Gildir aðeins fyrir kylfinga sem eru skráðir í annan golfklúbb.

Lægstu félagsgjöldin með takmarkaðri aðild:

  • 41.900 kr. hjá Golfklúbbi Brautarholts. Innifalið eru 5 golfhringir á vellinum og aðgangur að 8 vinavöllum.
  • 42.000 kr. hjá Golfklúbbi Borgarness. innifalið eru 5 golfhringir á vellinum og aðgangur að 26  vinavöllum.
  • 69.900 kr. hjá Golfklúbbi Brautarholts. Innifalið eru 10 golfhringir á vellinum og aðgangur að 8 vinavöllum.

Lægstu félagsgjöld án takmarkana (ath. ekki nýliðagjald)

  • 44.900 kr. Golfklúbbur Grindavíkur
  • 55.000 kr. Golfklúbbur Norðfjarðar
  • 60.000 kr. Golfklúbbur Álftaness
  • 60.000 kr. Golfklúbburinn Mostri
  • 60.000 kr. Golfklúbburinn Úthlíð.

Stuttvalla félagsaðild á höfuðborgarsvæðinu:

  • 72.000 kr. Ljúflingur – Golfklúbbur Oddur
  • 82.500 kr. Thorsvöllur – Golfklúbbur Reykjavíkur
  • 82.770 kr. Sveinkotsvöllur – Golfklúbburinn Keilir

Vinavellir

Fjöldi vinavalla sem eru innfaldir í félagsaðildinni teljast vera kaupauki fyrir kylfinga. Þegar rýnt er í vinavallarsamninga milli golfklúbba þá eru þeir að gefa allt að 50% afslátt af vallargjaldi hjá vinavelli. Sá golfklúbbur sem er með flesta vinavallarsamninga er Golfklúbbur Borgarnes eða með alls 26. Á stórhöfuðborgarsvæðinu eru það Golfklúbbur Selfoss, Golfklúbbur Sandgerðis og Golfklúbbur Suðurnesja með allt að 22.

Samkvæmt tölfræði þá er fjöldi vinavalla að meðaltali 10 hjá golfklúbbum á höfðuðborgarsvæðinu og ef farið er í stórhöfuðborgarsvæðið þá er meðaltalið 13. Fjöldi vinavalla er að aukast ár frá ári hjá golfklúbbum á höfuðborgarsvæðinu sem kemur ekki á óvart þar sem ásóknin í rástíma eykst samhliða.

Inntökugjald:

Hjá golfklúbbum á höfuðborgarsvæðinu er aukalega innheimt inntökugjald. Það er gjald er frá tæplega 40.000 kr. til 60.000

  • 39.000 kr. Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar
  • 40.000 kr. Golfklúbburinn Oddur
  • 40.000 kr. Golfklúbbur Reykjavíkur
  • 60.000 kr  Nesklúbburinn

Með fyrirvara um að allar upplýsingar um félagsgjöld hafi verið uppfærð og aðgengileg á vefsíðu golfklúbbsins.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ