Fannar Ingi Steingrímsson, GHG.
Auglýsing

Fannar Ingi Steingrímsson, sem er 17 ára kylfingu úr GHG í Hveragerði, hefur leik í dag á gríðarlega sterku alþjóðlegu unglingamóti. Mótið fer fram á hinum þekkta Torrey Pines þar sem Opna bandaríska meistaramótið fór fram með eftirminnilegum sigri Tiger Woods árið 2008. Það var jafnframt 14. risatitill Woods en hann hefur ekki sigrað á risamóti frá þeimt tíma.

Á hverju ári fer þar fram Farmers Insurance mótið sem er hluti af PGA mótaröðinni.

Margir þekktir kylfingar hafa sigrað á þessu mót og má þar nefna Tiger Woods, Rory McIlroy, Phil Mickelson og Ernie Els.


Hægt er að fylgjast með gangi mála hér:

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ