GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Auglýsing

Evrópumót kvenna, karla, stúlkna og pilta hefjast þriðjudaginn 7. júlí. Ísland er með lið í öllum fjórum mótunum og leika öll íslensku landsliðin í efstu deild.

Evrópumót pilta fer fram á Spáni, þar sem sextán sterkustu sveitir Evrópu mæta til leiks á Barceló Montecastillo Golf í Jerez de la Frontera.

Fyrirkomulag mótsins er tveggja daga höggleikur og þriggja daga holukeppni. Leikinn er 36 holu höggleikur fyrstu tvo keppnisdagana. Fimm af sex bestu skorunum telja í höggleiknum og því mikilvægt fyrir alla leikmenn liðsins að skila inn góðri frammistöðu. Að loknum höggleiknum tekur við holukeppni þar sem leikið er um sæti í mótinu.

Evrópumót pilta 7.-11. júlí á Spáni

Smelltu hér fyrir stöðuna hjá piltunum:

Lið Íslands skipa:

Arnar Daði Svavarsson, GKG
Björn Breki Halldórsson, GKG
Gunnar Þór Heimisson, GKG
Hjalti Kristján Hjaltason, GKG
Kristján Karl Guðjónsson, GM
Óliver Elí Björnsson, GK

Þjálfari: Andri Þór Björnsson
Sjúkraþjálfari: Bjartmar Birnir

Íslenska liðið tryggði sér sæti í efstu deild með frábærum árangri í Ungverjalandi í fyrra, þar sem liðið hafnaði í þriðja sæti í 2. deild og vann sér inn sæti á meðal sterkustu piltalandsliða Evrópu.

Barceló Montecastillo Golf er par 72 völlur hannaður af Jack Nicklaus. Völlurinn er staðsettur rétt utan við Jerez de la Frontera á Suður-Spáni og hefur áður hýst Volvo Masters mótið á Evrópumótaröðinni.

Við munum fylgjast með gengi okkar kylfinga á öllum helstu miðlum GSÍ.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ