/

Deildu:

Auglýsing

Íslenska kvennalandsliðið varð að sætta sig við tap gegn sterku lið Hollands á Evrópumóti kvennalandsliða sem leikið er í Slóvakíu

„Í dag lékum við gegn Hollandi og töpuðum öðrum leiknum í röð 3-2 eftir bráðamana í síðasta leik á 19 holu. Stelpurnar eru búnar að standa sig eins og hetjur í mótinu og hafa sýnt baráttu og að þær séu að bæta sig á alþjóðavettvangi. Það hrikalega svekkjandi að tapa tvo daga í röð þar sem sigurinn hafði getað fallið okkar megin”. sagði Brynjar Eldon Geirsson eftir leikinn í dag

Svona fóru leikirnir.  Berglind Björndóttir, GR og Ragnhildur Kristinsdóttir, GR töpuðu sínum leik 6/5. Sunna Víðisdóttir vann sinn leik 3/2. Signý Arnórsdóttir, GK hafði betur og vann öruggan sigur 6/4. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR tapaði sínum leik á 14 holu, 5/4. Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK varð að sætta sig við tap eftir eina holu í bráðabana.

Hér má sjá leiki dagsins.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ