/

Deildu:

Auglýsing

Guðmundur Ágúst Kristjánsson úr GR lék best okkar manna á fyrsta degi EM karlalandsliða sem fram fer í Finnlandi. Keppt er á Linna golfvellinum sem er staðsettur um 100 km frá Helsinki rétt utan við bæinn, Hameenlinna. Hægt er að nálgast ítarlegar upplýsingar um mótið og sker keppenda má finna hér.

Keppnisfyrkomulag: Að loknum höggleik fyrstu tvo dagana verður liðum raðað í tvo riðla, A og B, eftir árangri. Fyrstu 8 leika í A riðli og keppa um Evrópumeistaratitilinn á þremur dögum í holukeppni, sæti 1 gegn 8, 2 gegn 7 osfrv. Sæti 9-16 keppa einnig í holukeppni, þjóð gegn þjóð, um að halda þátttökurétti sínum í keppninni að ári, en 13 efstu fá þátttökurétt á næsta ári.

T38 – Guðmundur Ágúst Kristjánsson, Golfklúbbi Reykjavíkur, 72 högg, par

T48 – Haraldur Franklín Magnús, Golfklúbbi Reykjavíkur, 73 högg, +1

T64 – Gísli Sveinbergsson, Golfklúbbnum Keili, 74 högg, +2

T86 – Ragnar Már Garðarsson, Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar, 77 högg, +5

T90 – Andri Þór Björnsson, Golfklúbbi Reykjavíkur, 79 högg, +7

T94 – Bjarki Pétursson, Golfklúbbi Borgarness, 81 högg, +9

Þjálfari: Birgir Leifur Hafþórsson

Liðsstjóri: Gauti Grétarsson

Fimm bestu skorin telja eftir hvern dag í höggleiknum, skor Bjarka mun því ekki telja í dag.

 

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ