Auglýsing

Árlegt góðgerðarmót Nesklúbbsins, Einvígið á Nesinu, fer fram í 26. sinn þann 1. ágúst. Mótið sem haldið er í samstarfi við STEFNI hf., fer fram á frídegi verslunarmanna, mánudaginn 1. ágúst. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Nesklúbbnum.

Venju samkvæmt er nokkrum af bestu kylfingum landsins fyrr og síðar boðið til leiks og munu þau í ár leika í þágu stuðningsfélagsins Einstök börn. Einstök börn er stuðningsfélag barna og ungmenna með sjaldgæfa sjúkdóma eða sjaldgæf heilkenni. Félagið var stofnað 13. mars 1997 af foreldrum nokkurra barna en nú hefur félagið stækkað ört og eru hátt í 500 fjölskyldur í félaginu.

Einvígið hefst stundvíslega kl. 13.00 og verður fyrirkomulagið í Einvíginu þannig að fyrstu tvær holurnar í einvíginu verða leiknar með því sniði að sá fellur úr leik á fyrstu braut sem er fjærst holu eftir þrjú högg og tvö högg á annarri braut. Eftir það verður farið í hið hefðbundna “shoot-out” fyrir þá sem eru með hæsta skor á viðkomandi braut.

Við hvetjum alla áhugasama til að koma og fylgjast með okkar fremstu kylfingum leika í þágu góðs málefnis.

Það er sjóðastýringarfélagið STEFNIR sem er styrktaraðili Einvígisins á Nesinu í ár og mun í mótslok afhenda Einstökum börnum ávísun upp á eina milljón króna.

Þátttakendur í Einvíginu á Nesinu 2022

Aron Snær Júlíusson
Birgir Leifur Hafþórsson
Bjarni Þór Lúðvíksson
Guðrún Brá Björgvinsdóttir
Gunnlaugur Árni Sveinsson
Hlynur Bergsson
Magnús Lárusson
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir
Perla Sól Sigurbrandsdóttir
Ragnhildur Kristinsdóttir

ÁrSigurvegarar frá upphafi:
1997     Björgvin Þorsteinsson
1998     
Ólöf María Jónsdóttir
1999     Vilhjálmur Ingibergsson
2000     Kristinn Árnason
2001     Björgvin Sigurbergsson
2002     Ólafur Már Sigurðsson
2003     Ragnhildur Sigurðardóttir
2004     Magnús Lárusson
2005Magnús Lárusson
2006     Magnús Lárusson
2007     Sigurpáll Geir Sveinsson
2008     Heiðar Davíð Bragason
2009     Björgvin Sigurbergsson
2010     Birgir Leifur Hafþórsson
2011     Nökkvi Gunnarsson
2012     Þórður Rafn Gissurarson
2013     Birgir Leifur Hafþórsson
2014     Kristján Þór Einarsson
2015      Aron Snær Júlíusson
2016       Oddur Óli Jónasson
2017       Kristján Þór Einarsson
2018      Ragnhildur Sigurðardóttir
2019      Guðmundur Ágúst Kristjánsson
2020      Haraldur Franklín Magnús
2021      Guðmundur Ágúst Kristjánsson

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ