Auglýsing

Íslandsmótinu í golfi 2017 lauk s.l. sunnudag þar sem Valdís Þóra Jónsdóttir (GL) og Axel Bóasson (GK) fögnuðu Íslandsmeistaratitlunum eftir æsispennandi keppni. Í mótslok fór fram lokahóf þar sem að keppendur, starfsfólk og sjálfboðaliðar úr golfhreyfingunni áttu saman góða kvöldstund við frábærar aðstæður í golfskála Keilis.

Veitt voru verðlaun fyrir þrjú efstu sætin á Íslandsmótinu, vallarmet, holu í höggi ásamt ýmsum öðrum viðurkenningum.

Hér fyrir neðan eru nokkrar myndir sem teknar voru á lokahófinu.

Arnar Atlason formaður Keilis færði RÚV þakklætisvott fyrir beinu útsendinguna frá Íslandsmótinu. Friðrik Þór Halldórsson tók við viðurkenningunni. 

Frá vinstri: Gylfi Sigfússon forstjóri Eimskip, Haraldur Franklín Magnús (GR), Axel Bóasson (GK), Fannar Ingi Steingrímsson (GHG), Andri Þór Björnsson (GR), Haukur Örn Birgisson forseti GSÍ. 

Haukur Örn Birgisson forseti GSÍ og Arnar Atlason formaður GK.

Haukur Örn Birgisson forseti GSÍ og Gylfi Sigfússon forstjóri Eimskip

Brynjar Eldon Geirsson framkvæmdastjóri GSÍ, Haukur Örn Birgisson forseti GSÍ og Bergsteinn Hjörleifsson stjórnarmaður GSÍ og fyrrum formaður Keilis.

Guðrún Brá Björgvinsdóttir GK fékk viðurkenningu fyrir vallarmetið sem hún setti en það er 67 högg eða -4.  Arnar Atlason formaður Keilis er með henni á myndinni. 
Gylfi Sigfússon forstjóri Eimskip, Guðrún Brá Björgvinsdóttir (GK), Valdís Þóra Jónsdóttir (GL), Ragnhildur Kristinsdóttir (GR), Haukur Örn Birgisson forseti GSÍ. 
Stefán Már Stefánsson fær hér viðurkenningu frá Keili fyrir að hafa farið holu í höggi á 6. braut á Íslandsmótinu í golfi 2017. Guðmundur Örn Óskarsson er til vinstri og Arnar Atlason formaður Keilis til hægri. Guðmundur Örn Óskarsson, Ólafur Þór Ágústsson framkvæmdastjóri Keilis og Arnar Atlason formaður Keilis voru í mótsstjórn Íslandsmótsins.
Vikar Jónasson GK fékk viðurkenningu fyrir vallarmetið sem hann setti á 1. keppnisdeginum, 65 högg eða -6. Arnar Atlason formaður Keilis er til hægri.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ