Golfáhugafólk á Íslandi fær einstakt tækifæri í lok júní þegar tvö af stærstu nöfnum golfheimsins heimsækja landið, hinn áhrifamikli golfkennari David Leadbetter og þrefaldi risamótsmeistarinn Nick Price. Þeir munu halda fyrirlestur mánudaginn 30. júní 2025 kl. 11:00-13:00 í fundarsal Arionbanka við Borgartún.
Miðasala fer fram í gegnum Golfbox og kostar 3.900 krónur. Athugið að aðeins er um takmarkað sætaframboð að ræða og því um að gera að tryggja sér miða sem fyrst.
David Leadbetter er talinn einn áhrifamesti golfkennari sögunnar. Hann hefur haft mikil áhrif á þróun golfkennslunnar með nýstárlegum hugmyndum og tækni. Meðal nemenda hans má nefna nöfn á borð við Nick Faldo, sem vann sex risamót undir leiðsögn hans, auk Ernie Els, Lydiu Ko og Michelle Wie. Leadbetter hefur skrifað fjölmargar bækur um golf og verið með eigin golfakademíur víðsvegar um heiminn.
Á fyrirlestinum mun hann fjalla um þróun golfkennslunnar, breytingar á tækni og nálgun í þjálfun, og hvernig kylfingar á öllum getustigum geta bætt leik sinn.
Nick Price er einn besti kylfingur 20. aldarinnar.
Nick Price var á hátindi ferils síns efstur á heimslista kylfinga og vann þrjú risamót – Opna breska 1994 og PGA meistaramótið 1992 og 1994. Hann var þekktur fyrir stöðugleika í leik sínum og öflugan slátt, ásamt því að vera valinn í World Golf Hall of Fame árið 2003. Price hefur einnig verið virkur í golfstarfinu á heimsvísu og verður gaman að sjá hann hér á landi.
Pétur Pétursson, einn af aðstandendum viðburðarins, sagðist aðspurður að um væri að ræða mikið tækifæri:
Koma David Leadbetter og risameistarans Nick Price er einstakur viðburður fyrir íslenskt golf. Þetta er fágætt tækifæri til að fá beina innsýn í reynslu og þekkingu þeirra sem hafa mótað íþróttina á heimsvísu.
Fyrir alla sem hafa metnað og áhuga á golfi er þetta ómetanlegt tækifæri til að læra og sækja sér innblástur beint frá risum golfsögunnar. Aðgengi að þekkingu af þessu tagi hér heima eru forréttindi.
Miðasala fer fram á Golfbox – tryggið ykkur miða