Site icon Golfsamband Íslands

Bjarki, Axel og Andri Þór keppa á Skåne Challenge mótinu á Nordic Golf League

Þrír keppendur frá Íslandi taka þátt á Skåne Challenge mótinu sem fram fer á Sjöbo golfvellinum í Svíþjóð.

Mótið hófst miðvikudaginn 10. maí og eru leiknir þrír keppnishringir á þremur dögum. Lokahringurinn fer fram föstudaginn 12. maí.

Skåne Challenge hluti af Nordic Golf League atvinnumótaröðinni. – sem er í þriðja efsta styrkleikaflokki atvinnumótaraða í Evrópu í karlaflokki.

Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit frá mótinu í Svíþjóð.

Axel lék fyrsta hringinn á einu höggi undir pari, 71 höggi, og er í öðru sæti. Andri Þór lék á +2 eða 74 á fyrsta hringnum og Bjarki lék á 77 höggum eða +5.

Mótaröðin hefur reynst íslenskum kylfingum vel á undanförnum árum og opnað dyr inn á Áskorendamótaröðina (Challenge Tour). Fimm efstu á stigalistanum í lok keppnistímabilsins fá keppnisrétt á Challenge Tour og þrír sigrar á þessu tímabili tryggja einnig keppnisrétt á Challenge Tour.

Íslensku keppendurnir eru Andri Þór Björnsson, GR, Axel Bóasson, GK og Bjarki Pétursson, GKG.

Á stigalistanum er Axel í 6. sæti en hann hefur leikið á alls fimm mótum á þessu tímabili, Andri Þór hefur leikið á sex mótum og er í 77. sæti á stigalistanum. Bjarki hefur leikið á fjórum mótum og er í 81. sæti á stigalistanum.

Exit mobile version