Atvinnukylfingurinn úr GR keppir á sterkustu atvinnumótaröð Evrópu
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, atvinnukylfingur úr GR, hefur leik í dag á sínu fyrsta móti á sterkustu atvinnumótaröð Evrópu, LET Evrópumótaröðinni. Lalla Meryam mótið fer fram í Marokkó og er leikið á Royal Dar Es Salam vellinum.
Staðan í mótinu:
Þetta er fimmta mótið á keppnistímabilinu 2016 á LET Evrópumótaröðinni. Ólafía hefur leik kl. 12.25 að íslenskum tíma. Hún verður með tveimur spænskum keppendum í ráshóp fyrstu tvo dagana. Eftir 36 holur, eða tvo keppnisdaga, verður niðurskurður í keppendahópnum fyrir lokakeppnisdagana en alls eru leiknar 72 holur á fjórum dögum á LET Evrópumótaröðinni.
Ólafía hefur leikið á tveimur mótum á þessu tímabili á LET Access atvinnumótaröðinni, sem er næst sterkasta atvinnumótaröð kvenna í Evrópu. Hún er í 13. sæti á stigalistanum á LET Access eftir að hafa endaði í 24.-30. sæti á pari vallar á öðru mótinu sem fram fór í Sviss (72-69-75). Á fyrsta mótinu í Frakklandi endaði hún í 16. sæti á -1 samtals (74-72-72).
Aðeins þrír íslenskir kylfingar hafa komist inn á sterkustu atvinnumótaraðirnar í Evrópu eftir góðan árangur í úrtökumótum. Ólöf María Jónsdóttir úr Keili keppti fyrst allra árið 2005 eftir að hafa tryggt sér keppnisrétt á meðal þeirra bestu. Birgir Leifur Hafþórsson, úr GKG, er eini íslenski karlkylfingurinn sem hefur náð inn á Evrópumótaröðina með keppnisrétt. Ólafía Þórunn er því þriðji kylfingurinn frá Íslandi sem nær alla leið inn á mótaröð þeirra bestu.
![- Golfsamband Íslands Ólafía Þórunn Kristinsdóttir á öðrum keppnisdegi í Frakklandi. Mynd/seth@golf.is](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2020/04/IMG_6740.jpg)
![- Golfsamband Íslands Ólafía Þórunn Kristinsdóttir í Frakklandi á öðrum keppnisdegi. Mynd/seth@golf.is](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2020/04/IMG_6788.jpg)
![- Golfsamband Íslands Ólafía Þórunn Kristinsdóttir slær hér af teig í Frakklandi. Mynd/seth@golf.is](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2020/04/IMG_6896.jpg)
![- Golfsamband Íslands Ólafía slær hér úr glompu á Terre Blanche vellinu í dag í Frakklandi. Mynd/seth@golf.is](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2020/04/IMG_6449.jpg)
![- Golfsamband Íslands Ólafía Þórunn Kristinsdóttir slær hér á 18. braut á Terre Blanche vellinum í Frakklandi.](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2020/04/IMG_6135.jpg)
![- Golfsamband Íslands Ólafía Þórunn Kristinsdóttir á 18. teig í gær á æfingahring fyrir mótið í Frakklandi. Mynd/seth@golf.is](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2020/04/IMG_6107.jpg)