/

Deildu:

Auglýsing

Heimsóknir erlendra kylfinga til Íslands hafa aukist ár frá ári. Talið er að auking erlendra kylfinga hafi verið a.m.k. 15% á árinu 2013 og einstakir vellir hafa notið allt að 30% aukningar. Samtökin Golf Iceland tóku þátt í stærstu golfferða- sýningu heims, IGMT, sem fram fór á Spáni í byrjun nóvember. Um 1200 manns frá um 60 löndum tók þátt í ár, seljendur golferða, kaupendur golfferða svo og fjölmiðlamenn, sem fjalla um golf.

Að sögn Magnúsar Oddssonar, starfsmanns samtakanna var komið á framfæri við kaupendur á fjölmörgum fundum upplýsingum um meðlimi samtakanna Golf Iceland, ásamt almennum upplýsingum um Ísland og golf á Íslandi. Þá var dreift efni til fjölmiðlafólks og þeim veittar upplýsingar á fundum.

Á sýningunni á Spáni voru haldnir fyrirlestar um ýmislegt sem tengist golfferðamennsku og ýmsar niðurstöður kannana birtar um ferðahegðun kylfinga, eyðslu og fleira eftir markaðssvæðum. Þar kom m.a. fram að um 10% aukning hafi verið í sölu á golferðalögum árinu 2012 samanborið við árið 2011. Þessi hluti ferðaþjónustunnar hefur vaxið mikið sérstaklega á síðustu 10 árum og nú er talið að í Evrópu velti golfferðamennska um 260 milljörðum kr. á hverju ári.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ