GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Auglýsing

Aron Emil Gunnarsson úr Golfklúbbi Selfoss og Perla Sól Sigurbrandsdóttir úr Golfklúbbi Reykjavíkur eru stigameistarar GSÍ mótaraðarinnar árið 2026.

Aron Emil fagnar sínum fyrsta stigameistaratitli en Perla Sól vinnur titilinn í annað sinn. Hún varð einnig stigameistari árið 2023.

Perla Sól á meðal efstu fimm í öllum mótum sumarsins

Perla Sól lék í öllum sjö mótum GSÍ mótaraðarinnar og lauk tímabilinu með 4.560 stig. Hún var 860 stigum á undan Guðrúnu Brá Björgvinsdóttur, sem varð önnur með 3.700 stig.

Mikill stöðugleiki einkenndi sumar Perlu, en hún hafnaði í einu af fimm efstu sætunum í öllum mótum mótaraðarinnar.

Perla hóf tímabilið á sigri í Reykjanesmótinu og fékk þar 1.000 stig. Hún varð önnur í Korpubikarnum, fimmta í Powerade-mótinu í Þorlákshöfn og þriðja á Íslandsmótinu í holukeppni.

Hún deildi öðru sætinu í Hvaleyrarbikarnum og varð jöfn í þriðja sæti í Lexus-bikarnum á Leirdalsvelli. Perla lauk svo sumrinu í fjórða sæti á Íslandsmótinu í golfi á Korpúlfsstaðavelli.

Árangur Perlu í mótum sumarsins:

MótSætiStig
Reykjanesmótið1. sæti1.000
Korpubikarinn2. sæti700
Powerade-mótið5. sæti400
Íslandsmótið í holukeppni3. sæti660
HvaleyrarbikarinnJöfn í 2. sæti625
Lexus-bikarinnJöfn í 3. sæti500
Íslandsmótið í golfi4. sæti675
Samtals4.560

Fjóla Margrét Viðarsdóttir varð þriðja á stigalistanum með 2.838 stig. Eva Kristinsdóttir varð fjórða með 2.752 stig og Elsa Maren Steinarsdóttir fimmta með 2.601 stig.

Aðeins 110 stig skildu að Aron og Aron

Baráttan um stigameistaratitilinn í karlaflokki var spennandi. Aron Emil lauk tímabilinu með 4.178 stig, einungis 110 stigum meira en Aron Snær Júlíusson, sem varð annar með 4.068 stig.

Aron Emil lék í öllum sjö mótum sumarsins og var aldrei neðar en í sjöunda sæti. Hann vann ekki mót á tímabilinu en stöðug og góð frammistaða skilaði honum fyrsta stigameistaratitlinum.

Hann hóf sumarið í fjórða sæti í Reykjanesmótinu og varð annar í Korpubikarnum. Aron Emil varð sjöundi í Powerade-mótinu og þriðji á Íslandsmótinu í holukeppni.

Hann deildi fimmta sætinu í Hvaleyrarbikarnum og öðru sætinu í Lexus-bikarnum. Aron Emil lauk svo tímabilinu annar á Íslandsmótinu í golfi, þar sem hann fékk 1.050 stig og tryggði sér stigameistaratitilinn.

Árangur Arons Emils í mótum sumarsins:

MótSætiStig
Reykjanesmótið4. sæti450
Korpubikarinn2. sæti700
Powerade-mótið7. sæti330
Íslandsmótið í holukeppni3. sæti660
HvaleyrarbikarinnJafn í 5. sæti363
Lexus-bikarinnJafn í 2. sæti625
Íslandsmótið í golfi2. sæti1.050
Samtals4.178

Sigurður Bjarki Blumenstein varð þriðji á stigalistanum með 2.693 stig. Axel Bóasson varð fjórði með 2.630 stig og Böðvar Bragi Pálsson fimmti með 2.619 stig.

Fyrst var keppt um stigameistaratitla kvenna og karla á Íslandi árið 1989. Perla Sól bætir nú öðrum titli sínum við þann sem hún vann árið 2023, en Aron Emil kemst í fyrsta sinn á lista stigameistara GSÍ mótaraðarinnar.

Til hamingju með árangurinn Aron og Perla!

Stigameistarar í kvennaflokki frá upphafi:

ÁrNafnFjöldi
1989Karen Sævarsdóttir1
1990Ragnhildur Sigurðardóttir1
1991Ragnhildur Sigurðardóttir2
1992Karen Sævarsdóttir2
1993Ólöf M. Jónsdóttir1
1994Ólöf M. Jónsdóttir2
1995Ólöf M. Jónsdóttir3
1996Ólöf M. Jónsdóttir4
1997Ólöf M. Jónsdóttir5
1998Ólöf M. Jónsdóttir6
1999Ragnhildur Sigurðardóttir3
2000Herborg Arnarsdóttir1
2001Ragnhildur Sigurðardóttir4
2002Herborg Arnarsdóttir2
2003Ragnhildur Sigurðardóttir5
2004Ragnhildur Sigurðardóttir6
2005Ragnhildur Sigurðardóttir7
2006Ragnhildur Sigurðardóttir8
2007Nína Björk Geirsdóttir1
2008Ragnhildur Sigurðardóttir9
2009Signý Arnórsdóttir1
2010Valdís Þóra Jónsdóttir1
2011Signý Arnórsdóttir2
2012Signý Arnórsdóttir3
2013Signý Arnórsdóttir4
2014Karen Guðnadóttir1
2015Tinna Jóhannsdóttir1
2016Ragnhildur Kristinsdóttir1
2017Berglind Björnsdóttir1
2018Guðrún Brá Björgvinsdóttir1
2019Ragnhildur Kristinsdóttir2
2020Guðrún Brá Björgvinsdóttir2
2021Ragnhildur Kristinsdóttir3
2022Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir1
2023Perla Sól Sigurbrandsdóttir1
2024Hulda Clara Gestsdóttir1
2025Heiðrún Anna Hlynsdóttir1
2026Perla Sól Sigurbrandsdóttir2

Stigameistarar í karlaflokki frá upphafi:

ÁrNafnFjöldi
1989Sigurjón Arnarsson1
1990Úlfar Jónsson1
1991Ragnar Ólafsson1
1992Úlfar Jónsson2
1993Þorsteinn Hallgrímsson1
1994Sigurpáll G. Sveinsson1
1995Björgvin Sigurbergsson1
1996Birgir L. Hafþórsson1
1997Björgvin Sigurbergsson2
1998Björgvin Sigurbergsson3
1999Örn Ævar Hjartarson1
2000Björgvin Sigurbergsson4
2001Guðmundur Rúnar Hallgrímsson1
2002Sigurpáll G. Sveinsson2
2003Heiðar Davíð Bragason1
2004Birgir Leifur Hafþórsson2
2005Heiðar Davíð Bragason2
2006Ólafur Már Sigurðsson1
2007Haraldur H. Heimisson1
2008Hlynur Geir Hjartarson1
2009Alfreð Brynjar Kristinsson1
2010Hlynur Geir Hjartason2
2011Stefán Már Stefánsson1
2012Hlynur Geir Hjartason3
2013Rúnar Arnórsson1
2014Kristján Þór Einarsson1
2015Axel Bóasson1
2016Axel Bóasson2
2017Vikar Jónasson1
2018Axel Bóasson3
2019Dagbjartur Sigurbrandsson1
2020Axel Bóasson4
2021Aron Snær Júlíusson1
2022Kristján Þór Einarsson2
2023Logi Sigurðsson1
2024Aron Snær Júlíusson 2
2025Tómas Eiríksson Hjaltested1
2026Aron Emil Gunnarsson1

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ