/

Deildu:

Guðrún Brá og Berglind.
Auglýsing

Arnar Már Ólafsson, PGA golfkennari, hefur verið ráðinn nýr afreksþjálfari GKG og tekur til starfa um áramótin. Þetta kemur fram í tilkynningu frá GKG.

„Arnar Már er einn reynslumesti og farsælasti golfþjálfari Íslands og er það mikill og góður fengur fyrir GKG og íslenskt golf að fá Arnar í sínar raðir.

Arnar Már útskrifaðist úr sænska PGA golfkennaraskólanum 1991 og starfaði í 8 ár sem afreksþjálfari hjá Golfklúbbnum Keili. Hann starfaði síðan í Þýskalandi hjá Gut Düneburg Golf Club frá 1996 til 2004. Þaðan fór hann til Berlin Wannsee Golf-Landclub, sem er elsti og einn merkasti golfklúbbur Þýskalands, en flutti heim 2006 og starfaði sem unglingalandsliðsþjálfari hjá Golfsambandinu, jafnframt því sem hann stofnaði og kenndi við Golfkennaraskóla PGA á Íslandi. Seinustu 10 ár hefur hann starfað sem yfirþjálfari hjá Berlin Wannsee Golf Landcub.

Undanfarin ár hefur hann þjálfað afrekskylfinga í fremstu röð, t.a.m. Phillip Mejow sem leikur á European Tour og Challenge Tour, og landsliðsmennina Bjarka Pétursson, Guðmund Ágúst Kristjánsson og Andra Þór Björnsson.

Arnar fékk gullmerki GSÍ árið 2012 fyrir framlag sitt til golfíþróttarinnar á Íslandi, ekki síst fyrir að tryggja PGA golfkennaraskólanum fulla viðurkenningu innan evrópsku PGA samtakanna.

Arnar Már er kvæntur Helgu Lárusdóttur og eiga þau tvær dætur, þær Sólrúnu 21 árs og Ástrós 25 ára.„

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ