Opið er fyrir skráningu í fyrstu mót ársins á Íslandsbankamótaröðinni 2018 og einnig á Áskorendamótaröðinni. Þetta eru mótaraðir fyrir börn og unglinga. Athygli er vakin á því að dagsetningar á mótaskrá sem birt var í tímaritinu Golf á Íslandi nýverið voru ekki allar réttar. Beðist er velvirðingar á því.
Keppt er á Strandarvelli á Hellu á Íslandsbankamótaröðinni og er hægt að skrá sig hér. Keppt er í fjórum aldursflokkum hjá báðum kynjum, 14 ára og yngri, 15-16 ára, 17-18 ára og 19-21 árs.
Keppt verður á Gufudalsvelli hjá Golfklúbbnum í Hveragerði á Áskorendamótaröðinni. Nánari upplýsingar um 18 holu mótið má nálgast hér og upplýsingar um 9 holu mótið eru hér.
Áskorendamótaröðin er hugsuð sem fyrstu skref og stuðningur við keppnisþátttöku ungra kylfinga. Markmiðið er að hafa gaman og aðaláherslan lögð á að læra leikinn og mismunandi leikform hans. Þjálfarar, liðstjórar og foreldrar eru hvattir til þess að taka virkan þátt í að gera þessi mót sem skemmtilegust fyrir þátttakendur með leiðbeinandi og jákvæðu hugarfari í kringum mótin.
Maí
| 25-27 | Íslandsbankamótaröðin (1) | Strandarvöllur, GHR |
| 26 | Áskorendamótaröð Íslandsbanka (1) | Gufudalsvöllur, GHG |
Júní
| 1-3 | Íslandsbankamótaröðin (2) | Korpúlfstaðavöllur, GR |
| 2 | Áskorendamótaröð Íslandsbanka (2) | Korpúlfstaðavöllur, GR |
| 22-24 | Íslandsbankamótaröðin (3) – Íslandsmót í höggleik | Hólmsvöllur, GS |
| 23 | Áskorendamótaröð Íslandsbanka (3) | Kálfatjarnarvöllur, GVS |
Júlí
| 20-22 | Íslandsbankamótaröðin (4) – Íslandsmótið í holukeppni | Jaðarsvöllur, GA |
| 21 | Áskorendamótaröð Íslandsbanka (4) | Arnarholtsvöllur, GHD |
Ágúst
| 24-26 | Íslandsbankamótaröðin (5) – Lokamót | Leirdalsvöllur, GKG |
| 25 | Áskorendamótaröð Íslandsbanka (5) – Lokamót | Nesvöllur, NK |
