Það styttist í að keppnistímabilið á Eimskipsmótaröðinni hefjiist. Fyrsta mótið fer fram 20.-22. maí á Strandarvelli á Hellu. Töluverðar breytingar verða gerðar á Eimskipsmótaröðinni á þessu tímabili og má þar nefna að mótunum verður fjölgað, og er markmiðið með breytingunum að stækka mótaröðina og auka umfang hennar.
Hverjar eru breytingarnar?
- Fleiri mót: Alls 8 mót á Eimskipsmótaröðinni, í en þau voru 6 á síðasta ári. 
 
- Á árinu 2016 verður sú undantekning að sex mót telja til stigameistaratitla á Eimskipsmótaröðinni.
 
- Frá og með árinu 2017 munu alls átta mót telja á stigalista Eimskipsmótaraðarinnar.
 
- Keppnistímabil hvers árs hefst í lok ágúst og lýkur í sama mánuði, ári síðar. 
 
- Tímabilið hefst á tveimur mótum að hausti, því fylgja svo tvö mót að vori árið eftir og lýkur á fjórum mótum yfir hásumarið.
 
- Fjöldi keppenda á haust- og vormótum, auk Íslandsmótsins í golfi, verður með sama sniði og í dag en færri keppendur verða á öðrum mótum.
 
- Tvö ný mót bætast við mótaröðina. Þátttakendafjöldi á þeim verður takmarkaður og mun hann taka mið af stöðu keppenda á heimslista atvinnu- og áhugamanna og stigalista GSÍ á hverjum tíma. 
 
- Sumar þessara breytinga kunna að fela í sér ákveðið fráhvarf frá núverandi fyrirkomulag á meðan aðrar tillögur fela eingöngu í sér skerpingu á því sem áður hefur verið gert.
 
- Golfklúbbur Reykjavíkur og Golfklúbburinn Keilir hafa báðir boðist til að skuldbinda sig til þess að vera með árleg mót á mótaröðinni næstu þrjú ár.
 
- Hámarksforgjöf í mót á mótaröðinni verður 5,5 hjá körlum og 8,5 hjá konum.
 
- Lagðar hafa verið fram tillögur um að breytingar verði gerðar á fyrirkomulagi Íslandsmótsins í holukeppni. Óvíst er að tillagan verði framkvæmd á þessu ári og helstu atriðin eru eftirfarandi.
- Keppendur í karlaflokki verði 64 og raðast í 16 riðla.
- Keppendur í kvennaflokki verði 24 og raðast í 8 riðla.
- Íslandsmeistari í holukeppni fyrra árs, þrír efstu Íslendingarnir á heimslista atvinnumanna og þrír efstu kylfingarnir á heimslista áhugamanna eiga þátttökurétt í mótinu. Á þetta bæði við karla- og kvennaflokki.
- Að frátöldum þeim kylfingum sem eiga sjálfkrafa þátttökurétt ræður staðan á stigalistanum talið frá og með síðasta Íslandsmóti í holukeppni.
- Í stað stöðu leikmanna á stigalistanum ræður forgjöf þátttakenda því í hvaða röð leikmenn raðast í riðla.
Mótin á Eimskipsmótaröðinni 2016:
20.- 22. maí:
GHR, Strandarvöllur. (1)
3.-5. júní: 
GM, Hlíðavöllur Mosfellsbær. (2.) 
17.-21. júní: 
GS, Hólmsvöllur, Íslandsmótið í holukeppni. (3)
15.-17. júlí: 
GK, Hvaleyrarvöllur. (4)
21.-24. júlí: 
GA, Jaðarsvöllur, Íslandsmótið í golfi. (5)
19.-21. ágúst: 
GR, Korpúlfsstaðavöllur. (6) 
2.-4. sept: 
GV, Vestmannaeyjavöllur. (7)
19.-21. sept: 
GL, Garðavöllur. (8)
 
								 
								 
				 
				 
				 
				 
				 
				 
								
 
                                 
                                 
                                 
                                 
                                 
                                


