Gísli Sveinbergsson úr Keili endaði í þriðja sæti á Opna finnska áhugamannamótinu sem lauk í dag. Gísli lék lokahringinn á 72 (+1) og var hann samtals á -3 (69-69-73). Bjarki Pétursson úr Golfklúbbnum í Borgarnesi varð í 25. sæti en hann lék á 73 í dag (+2) og lauk keppni á +9 (75-74-73). Gísli deildi þriðja sætinu með Samuel Echikson.
Heimamaðurinn Lauri Russka sigraði á mótinu en hann lék hringina þrjá á -7 samtals (67-69-70).