Ársskýrsla Golfsambands Íslands fyrir árið 2026 og skýrslan Virði golfíþróttarinnar fyrir líðan, heilsu og samfélag Íslendinga eru nú aðgengilegar á netinu. Báðar skýrslurnar voru prentaðar fyrir formannafund GSÍ sem haldinn var á Jaðri á Akureyri laugardaginn 7. nóvember.
Í ársskýrslunni er farið yfir starfsemi GSÍ og helstu áfanga ársins, meðal annars mótahald, afreksstarf, sjálfbærnimál og fjármál sambandsins. Þar er einnig fjallað um fjölgun kylfinga á Íslandi. Á árinu voru 33.597 kylfingar skráðir í 63 golfklúbba, sem er 14,4% fjölgun frá fyrra ári.






Í skýrslunni um virði golfíþróttarinnar er lagt mat á áhrif golfs á heilsu og líðan, hagræn áhrif þess og ávinning fyrir samfélagið. Niðurstöður greiningarinnar, sem unnin var á vegum GSÍ, KPMG, HR og Finnish Society of Sport Sciences, voru fyrst kynntar í september. Samkvæmt greiningunni er samfélagslegt virði golfíþróttarinnar á Íslandi metið á rúman 31 milljarð króna á ári, eða um tvöfalt það sem varið er til golfiðkunar.
Lesa skýrsluna um samfélagslegt virði golfíþróttarinnar





