Anna María Reynisdóttir úr Golfklúbbnum Vestarr var útnefnd sjálfboðaliði ársins 2026 hjá Golfsambandi Íslands á formannafundi GSÍ, sem fram fór á Jaðarsvelli þann 7. nóvember. Hún hlýtur viðurkenninguna fyrir áratuga sjálfboðaliðastarf og ómetanlegt framlag sitt til klúbbsins.
Anna María hefur verið félagi í Vestarr í um 30 ár, nær allt frá stofnun klúbbsins. Hún hefur sinnt fjölbreyttum verkefnum innan félagsins, meðal annars í kvennastarfi, mótanefnd og stjórn. Síðustu sex ár hefur hún gegnt stöðu gjaldkera.
Í tilnefningu Golfklúbbsins Vestarr er sérstaklega fjallað um mikilvægt hlutverk Önnu Maríu við kaup og fjármögnun á landi golfvallarins. Kaupin voru stórt og krefjandi verkefni fyrir félagið og mikilvægur áfangi í að tryggja framtíð þess.
Að baki árangrinum lágu umfangsmiklar samningaviðræður, náið samstarf við sveitarfélagið og ótal samtöl við styrktaraðila, velunnara og félagsmenn. Með sameiginlegu átaki tókst að ljúka fjármögnun kaupanna og greiða upp skuldir vegna þeirra mun fyrr en upphaflega var áætlað.
Framlag Önnu Maríu til verkefnisins er í tilnefningunni sagt ómetanlegt. Þar er jafnframt undirstrikað hversu mikilvægt sé fyrir stjórn og formann að hafa öfluga og trausta sjálfboðaliða sér við hlið þegar tekist er á við stór verkefni.
Með útnefningunni er Önnu Maríu þakkað fyrir óeigingjarnt starf í þágu Golfklúbbsins Vestarr og mikilvægt framlag til að tryggja framtíð golfiðkunar í Grundarfirði.



