GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Á myndinni, frá vinstri í efri röð: Kristján Karl Guðjónsson (GM), Björn Breki Halldórsson (GKG), Halldór Jóhannsson (GK), Óliver Elí Björnsson (GK), Skarphéðinn Egill Þórisson (NK), Máni Freyr Vigfússon (GK) og Gunnar Þór Heimisson (GKG). Í neðri röð: Embla Hrönn Hallsdóttir (GKG), Elva María Jónsdóttir (GK), Ásdís Rafnar Steingrímsdóttir (GR) og Elísabet Þóra Ólafsdóttir (NK).
Auglýsing

Ólafur Björn Loftsson afrekssjóri GSÍ og Andri Þór Björnsson aðstoðarafreksstjóri GSÍ völdu á dögunum 23 kylfinga í nýjan landsliðshóp. Fyrstu æfingar vetrarins fóru fram í lok október á Nesvöllum, innaæfingasvæði Nesklúbbsins en það verður þétt dagskrá í landsliðsstarfinu í vetur. 

“Það eru spennandi tímar fram undan fyrir okkar landsliðskylfinga. Við hefjum tímabilið töluvert fyrr en undanfarna vetra og munum standa fyrir fleiri æfingum og bættum stuðningi. Hópurinn mun koma saman einu sinni í viku fyrir áramót og eftir áramót verður áhersla á æfinga- og keppnisferðir erlendis ásamt landsliðsæfingabúðum hér á landi. Í fyrsta sinn verður svo haldin æfingaferð í Bandaríkjunum fyrir þá landsliðskylfinga sem stunda nám við bandaríska háskóla. Æfingaferðin fer fram í Flórída í lok nóvember sem mun án efa nýtast kylfingunum vel.” – segir Ólafur Björn Loftsson

Í byrjun janúar heldur landsliðshópurinn, líkt og undanfarin ár, í æfingaferð á La Finca golfsvæðið á Spáni.

“Það er ekki að ástæðulausu sem við förum til La Finca þriðja árið í röð. Aðstaðan þar er til fyrirmyndar og það er ótrúlega mikilvægt að kylfingarnir okkar fái tækifæri til að æfa við þessar frábæru aðstæður á glæsilegum golfvelli. Þessi ferð er virkilega mikilvægur þáttur á árinu fyrir okkar afrekskylfinga og þjálfara. Keppnisferðirnar skipta hópinn einnig miklu máli en hópurinn fer í spennandi ferð til Ítalíu um páskana í tvö alþjóðleg mót. Það er mjög ánægjulegt að geta boðið kylfingunum upp á þessi tækifæri og hlökkum við mikið til komandi verkefna. Það er meðbyr í íslensku afreksgolfi og við viljum fylgja vel á eftir frábæru ári þar sem margir afrekskylfingar náðu eftirtektarverðum árangri sem skipa sér á meðal þeirra merkustu í íslenskri golfsögu. – segir Ólafur Björn Loftsson

Landsliðshópurinn er þannig skipaður: 

Elsa Maren Steinarsdóttir, GL

Gunnlaugur Árni Sveinsson, GKG

Perla Sól Sigurbrandsdóttir, GR

Veigar Heiðarsson, GA

Eva Kristinsdóttir, GM

Markús Marelsson, GK

Gunnar Þór Heimisson, GKG

Kristján Karl Guðjónsson, GM

Pamela Ósk Hjaltadóttir, GKG

Arnar Daði Svavarsson, GKG

Ásdís Rafnar Steingrímsdóttir, GR

Bryndís Eva Ágústsdóttir, GA 

Embla Hrönn Hallsdóttir, GKG

Lilja Maren Jónsdóttir, GA

Óliver Elí Björnsson, GK

Björn Breki Halldórsson, GKG

Elva María Jónsdóttir, GK

Hjalti Kristján Hjaltason, GKG

Máni Freyr Vigfússon, GK

Skarphéðinn Egill Þórisson, NK

Barri Björgvinsson, GA

Halldór Jóhannsson, GK

Elísabet Þóra Ólafsdóttir, NK

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ