Formannafundur Golfsambands Íslands verður haldinn laugardaginn 7. nóvember í golfskálanum á Jaðri á Akureyri. Fundurinn hefst kl. 10:00 og stendur til kl. 16:30.
Á fundinum verður farið yfir starfsemi og fjármál GSÍ, auk þess sem fjölbreytt málefni golfhreyfingarinnar verða til umfjöllunar.
Meðal dagskrárliða eru stefna GSÍ í afreksmálum, gagnagreining golfhreyfingarinnar, mótahald og framtíð golfvallarumhirðu. Þá mun Robbie Clyde, framkvæmdastjóri skoska golfsambandsins flytja erindi um þróun golfíþróttarinnar í Skotlandi, meðal annars Open Play, nýliðun og afreksmál.
Einnig verður fjallað um samfélagslegt virði golfs fyrir líðan og heilsu Íslendinga.
Boðið verður upp á léttar veitingar og hádegisverð á meðan á fundinum stendur.
Fundarstaður: Golfskálinn á Jaðri, Akureyri
Dagsetning: Laugardagur 7. nóvember 2026
Tími: Kl. 10:00–16:00



