Dagbjartur Sigurbrandsson endaði jafn í 12. sæti og Hlynur Bergsson jafn í 20. sæti á Road to Europe Final by Sparekassen Danmark, lokamóti Nordic Golf League, sem lauk hjá Aalborg Golfklub í Danmörku í gær. Dagbjartur lauk leik á einu höggi undir pari en Hlynur á tveimur höggum yfir pari.
Dagbjartur lék hringina þrjá á 74, 66 og 72 höggum. Annar hringur hans var einn sá besti í öllu mótinu, en þar lék hann á fimm höggum undir pari.
Hlynur lék hringina á 70, 73 og 72 höggum. Hann var jafn í sjötta sæti eftir fyrsta keppnisdag og í 18. sæti fyrir lokahringinn.
Með mótinu lauk tímabilinu á Nordic Golf League. Dagbjartur endaði í 24. sæti Road to Europe stigalistans og Hlynur í 29. sæti. Fimm efstu kylfingar listans unnu sér keppnisrétt á HotelPlanner mótaröðinni árið 2027.
Dagbjartur tók þátt í 20 mótum á Nordic Golf League á tímabilinu og endaði sex sinnum á meðal tíu efstu. Besti árangur hans var fjórða sætið á Royal Unibrew Championship í Danmörku í maí, en hann var einnig jafn í fjórða sæti á Folksam Championship í Svíþjóð í september. Hlynur lék í 22 mótum og náði þrívegis að enda á meðal tíu efstu. Hans besti árangur var fjórða sætið á Indoor Golf Group Göteborg Open í júní, auk þess sem hann varð sjöundi á ECCO Tour Sand Valley Masters í Póllandi og jafn í tíunda sæti á Folksam Championship.
Dagbjartur á enn möguleika á að vinna sér keppnisrétt í gegnum úrtökumót DP World Tour. Hann leikur á öðru stigi úrtökumótanna á Spáni dagana 29. október til 1. nóvember. Sigurður Arnar Garðarsson og Ragnar Már Garðarsson verða þar einnig á meðal keppenda.



