GSÍ fjölskyldan
Auglýsing

Samfélagslegt virði golfíþróttarinnar á Íslandi er metið á 31,22 milljarða króna á ári samkvæmt nýrri greiningu sem Golfsamband Íslands kynnti á málstofu í samstarfi við KPMG. Niðurstöðurnar sýna að ávinningur samfélagsins er um tvöfaldur á við þá 15,7 milljarða króna sem varið er til íþróttarinnar. Áætlað er að golfiðkun spari ríkinu um fjóra milljarða króna í heilbrigðiskostnaði.

Greiningin byggir á aðferðafræði samfélagslegrar arðsemi fjárfestinga, SROI. Með henni er leitast við að meta áhrif golfíþróttarinnar á heilsu, líðan og félagslega þátttöku í fjárhagslegu samhengi. Verkefnið var unnið á vegum GSÍ, Finnish Society of Sport Sciences og KPMG.

„Samfélagslegt virði golfíþróttarinnar á Íslandi er upp á rúman 31 milljarð,“ sagði Hulda Bjarnadóttir, forseti GSÍ, í viðtali við RÚV um niðurstöðurnar.

Hreyfing og félagsleg tengsl skipta máli

Golf sameinar hreyfingu, útivist og samveru. Ávinningurinn nær því lengra en til þess tíma sem fólk ver á vellinum: Regluleg iðkun getur stutt við líkamlega og andlega heilsu, en golfklúbbar skapa einnig vettvang fyrir félagsleg tengsl á öllum aldri.

Samkvæmt gögnum sem kynnt voru með greiningunni hreyfðu kylfingar 19 ára og eldri sig að meðaltali í 310 mínútur á viku við golfiðkun á tímabilinu maí til ágúst 2025. Það er umfram viðmið um 150-300 mínútna hreyfingu á viku fyrir fullorðna. Þátttaka í golfi helst jafnframt sterk með hækkandi aldri, sem gerir íþróttina að mikilvægum kosti þegar hugað er að virkni og heilsu eldri kynslóða.

Líta má á niðurstöðurnar sem innlegg í umræðu um uppbyggingu golfíþróttarinnar. Aðgengi að völlum og annarri aðstöðu snýst ekki aðeins um möguleika fólks til að stunda íþróttina, heldur einnig um þann ávinning sem regluleg hreyfing, útivist og þátttaka geta skilað samfélaginu.

Lesa umfjöllun RÚV og viðtalið við Huldu Bjarnadóttur

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ