Nýtt veggjalistaverk var vígt á Vatnahverfisvelli við Blönduós í september. Verkefnið færði list inn á golfvöllinn og leiddi saman listakonu úr heimabyggð, börn í Sumarfjöri Húnabyggðar og félaga í Golfklúbbnum Ósi.
Listakonan Inese Elferte málaði í sumar stórt verk á vegg vélageymslu klúbbsins. Börnin settu einnig svip sinn á svæðið með því að skreyta níu hurðir á gömlu fjárhúsunum. Samhliða framkvæmdinni voru hús á vellinum máluð, bæði veggir og þök.
Verkefnið, Veggjalist í Vatnahverfi, hlaut styrk úr Uppbyggingarsjóði Norðurlands vestra. Félagar í Golfklúbbnum Ósi lögðu jafnframt fram ómetanlegt sjálfboðastarf við framkvæmdina.
Vígslan fór fram samhliða lokamóti Golfklúbbsins Óss á Blönduósi og klúbbsins á Skagaströnd. Mótið er leikið á völlum beggja klúbba. Gestir og kylfingar voru viðstaddir vígsluna, þar sem flutt voru ávörp og klúbburinn bauð upp á veitingar.
Vatnahverfisvöllur er skammt frá þjóðvegi 1. Golfklúbburinn Ós býður kylfinga velkomna að koma við, leika golf og skoða verkið þegar færi gefst.














