Málstofa Golfsambands Íslands og KPMG um virði golfíþróttarinnar fyrir líðan, heilsu og samfélag Íslendinga fór fram miðvikudaginn 23. september í húsnæði KPMG í Borgartúni. Viðburðurinn var vel sóttur og tókst í alla staði vel.
Á málstofunni voru kynntar niðurstöður nýrrar rannsóknar á samfélagslegu virði golfíþróttarinnar. Rannsóknin byggir á aðferðafræði samfélagslegrar arðsemi fjárfestinga (e. Social Return on Investment – SROI) og varpar ljósi á þau jákvæðu áhrif sem golfiðkun hefur á heilsu, líðan og félagslega þátttöku.
Meðal helstu niðurstaðna rannsóknarinnar er að golfið geti skilað ríkinu um 30 milljarða króna sparnaði vegna jákvæðra áhrifa íþróttarinnar á heilsu og líðan landsmanna. Niðurstöðurnar undirstrika jafnframt mikilvægi golfhreyfingarinnar sem vettvangs lýðheilsu, félagslegra tengsla og virkrar öldrunar.
Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ, flutti opnunarávarp og Hulda Bjarnadóttir, forseti GSÍ, fjallaði um hlutverk golfsins í lýðheilsu og virkri öldrun. Helga Garðarsdóttir og Emil Þór Ragnarsson, sérfræðingar hjá KPMG, kynntu niðurstöður rannsóknarinnar og Sigríður Kristín Hrafnkelsdóttir lýðheilsufræðingur fjallaði um samfélagslegar áskoranir og virði golfhreyfingarinnar.
Að erindum loknum fóru fram góðar umræður meðal gesta um niðurstöður rannsóknarinnar og þau tækifæri sem felast í frekari uppbyggingu og nýtingu golfíþróttarinnar í þágu samfélagsins.
Við þökkum KPMG fyrir frábært samstarf og þeirra gestrisni, frummælendum fyrir áhugaverð erindi og öllum þeim sem mættu eða fylgdust með málstofunni rafrænt.
Betur verður sagt frá niðurstöðum rannsóknarinnar á miðlum GSÍ og KPMG á næstu dögum.














