Róbert Leó Arnórsson, kylfingur GKG, náði frábærum árangri á Ryan T. Lee Memorial Collegiate mótinu í Bandaríkjunum um síðustu helgi. Hann varð þriðji af 90 keppendum og lauk mótinu á sex höggum undir pari eftir hringi upp á 73, 65 og 69 högg. Mótið fór fram á Ledgemont Country Club í Massachusetts dagana 19.-20. september.
Róbert leikur fyrir Manhattan University. Á öðrum hring mótsins lék hann á 65 höggum, sex höggum undir pari og var skollalaus. Samkvæmt skólanum er það lægsta skor sem kylfingur úr golfliði Manhattan hefur leikið á einum hring. Róbert fylgdi því eftir með 69 höggum á lokahringnum og lauk mótinu á sex höggum undir pari.

Ronan Mooney frá Sacred Heart University sigraði einstaklingskeppnina á ellefu höggum undir pari. Mike McConie frá Siena College varð annar á átta undir pari, tveimur höggum á undan Róberti. Í liðakeppninni varð Manhattan í níunda sæti af 18 liðum, en Bryant University stóð uppi sem sigurvegari.




