Hlutverk dómara í golfi er afar mikilvægt enda stuðlar góð dómgæsla að sanngjarnri keppni, réttri framkvæmd golfreglnanna og faglegri umgjörð móta. Til að mæta þeim kröfum sem gerðar eru til dómara þurfa þeir að viðhalda þekkingu sinni og sækja reglulega námskeið og endurmenntun.
Í ársbyrjun 2025 innleiddi The R&A ný viðmið fyrir menntun golfdómara. Með breytingunum voru kröfur auknar og meiri áhersla lögð á verklega reynslu samhliða góðri þekkingu á golfreglunum. Jafnframt var námsefni fyrir dómara uppfært og fjórða námsstigið, svokallað „Level 4“, tekið upp fyrir umsjónaraðila mótaraða atvinnukylfinga. GSÍ hefur þýtt stóran hluta námsefnisins og nýtir það meðal annars á námskeiðum fyrir héraðs- og landsdómara.
Auknar kröfur eru einnig gerðar til þeirra sem stefna að alþjóðlegum dómararéttindum. Eftir að hafa lokið prófi og námskeiði The R&A í mótahaldi og dómgæslu, Tournament Administrators and Referees School (TARS), á þriðja námsstigi þurfa dómarar að sýna fram á reynslu af dómgæslu á hæsta stigi. Þar getur meðal annars verið um að ræða störf á Íslandsmótum eða GSÍ mótaröðinni. TARS er leiðandi námskeið The R&A á þessu sviði og fjallar bæði um dómgæslu og framkvæmd golfmóta.
Dómarar þurfa að skrá þessa reynslu og fá hana staðfesta af dómaranefnd GSÍ. Að lágmarki þurfa þeir að hafa sinnt 120 klukkustundum við dómgæslu að loknu námskeiðinu áður en réttindin eru staðfest.
Gunnar Gylfason og Nicholas Anthony Cathcart-Jones eru fyrstu íslensku dómararnir sem ljúka þessu nýja ferli. Að loknu prófi og námskeiði fengu þeir réttindi sem alþjóðadómarar GSÍ. Þeir hafa nú skilað inn starfsskýrslum sínum, sem dómaranefnd GSÍ hefur staðfest, og The R&A hefur gefið út viðurkenningarskírteini þeirra.
Báðir höfðu áður öðlast landsdómararéttindi og búa yfir áralangri reynslu af dómarastörfum, líkt og aðrir dómarar sem GSÍ sendir á námskeið The R&A í St Andrews í Skotlandi.
Gunnar og Nicholas hafa þar með öðlast alþjóðlega viðurkennd réttindi til að sinna dómgæslu þar sem gerð er krafa um þriðja stigs dómararéttindi. Dómarar GSÍ sem hafa þessi réttindi eru núna 13 talsins og að auki er einn í ferlinu að safna reynslu.
GSÍ óskar Gunnari og Nicholas hjartanlega til hamingju með þennan merka áfanga.




