GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Auglýsing

Andrea Bergsdóttir náði frábærum árangri á Lavaux Ladies Open mótinu á LET Access mótaröðinni sem fór fram dagana 16.-18 september. Þrír íslenskir kylfingar tóku þátt í mótinu, sem fór fram á Golf de Lavaux vellinum í Sviss.

Andrea lék hringina þrjá á tíu höggum undir pari og náði sínum besta árangri á tímabilinu. Hún lék fyrsta hringinn á 70 höggum, annan hringinn á 67 höggum og endaði á 69 högga hring. Andrea deildi þriðja sæti mótsins með Elsu Svensson frá Svíþjóð og Lauren Holmey frá Frakklandi.

Ragnhildur Kristinsdóttir lék hringina á 70, 69 og 75 höggum. Hún lauk leik á tveimur höggum undir pari og varð jöfn í 27. sæti.

Hulda Clara Gestsdóttir lék á einu höggi yfir pari og varð jöfn í 40. sæti. Hún lék hringina þrjá á 73, 71 og 73 höggum.

Fimm mót eru eftir á tímabili LET Access mótaraðarinnar en sjö efstu kylfingarnir á stigalistanum í lok tímabilsins tryggja sér keppnisrétt á Ladies European Tour árið 2027. Hulda Clara er í sjöunda sæti listans, Ragnhildur í því sextánda og Andrea í því átjánda.

Hér má sjá úrslit mótsins

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ