Íslenskir háskólakylfingar náðu góðum árangri í sterkum mótum í Bandaríkjunum í vikunni. Eva Kristinsdóttir varð jöfn í fimmta sæti á Badger Invitational, Elsa Maren Steinarsdóttir náði sínum besta árangri í háskólagolfinu þegar hún endaði í þriðja sæti á Elon Women’s Invitational og Veigar Heiðarsson lauk leik jafn í tólfta sæti á Inverness Intercollegiate.
Eva Kristinsdóttir lék hringina þrjá á pari og varð jöfn í fimmta sæti á Badger Invitational mótinu, sem fór fram á University Ridge vellinum í Madison í Wisconsin.
Eva lék fyrsta hringinn á 69 höggum, þremur undir pari. Hún lék annan hringinn á 76 höggum og endaði mótið vel þegar hún kom í hús á 71 höggi, einu undir pari. Heildarskor hennar var 216 högg, sem var einnig besta skor allra kylfinga úr hennar skóla.
Iowa lék samtals á 14 höggum yfir pari og hafnaði í fjórða sæti af 16 liðum. Iowa State vann liðakeppnina á sjö höggum undir pari en Emma Zheng, leikmaður skólans, sigraði í einstaklingskeppninni á sjö höggum undir pari.
Elsa Maren Steinarsdóttir náði besta árangri sínum til þessa í háskólagolfinu þegar hún hafnaði í þriðja sæti á Elon Women’s Invitational á Alamance Country Club í Norður Karólínu.
Elsa lék fyrstu tvo hringina á 70 og 68 höggum og var í forystu á fjórum höggum undir pari fyrir lokahringinn. Hún hélt forystunni fram á seinni níu holurnar en þrír skollar í röð á 13.-15. holu reyndust dýrir.
Elsa lék lokahringinn á 73 höggum og lauk mótinu á tveimur höggum undir pari. Hún varð ein í þriðja sæti, aðeins einu höggi á eftir Lilli Downer frá Elon og Abigail Avallone frá William & Mary, sem deildu sigrinum.
Elsa fékk tíu fugla á hringjunum þremur og var best allra keppenda á par fjögur holum mótsins.
Western Carolina, sem er skóli Elsu, hafnaði í fimmta sæti af fimmtán liðum. Liðið lék hringina þrjá á 36 höggum yfir pari. Elon vann liðakeppnina með 21 höggs mun.
Veigar Heiðarsson lék vel á lokahring Inverness Intercollegiate mótsins á hinum sögufræga Inverness Club í Toledo í Ohio.
Veigar lék hringina þrjá á 73, 75 og 68 höggum. Lokahringinn lék hann á þremur höggum undir pari og heildarskor hans var fimm högg yfir pari. Hann endaði jafn í tólfta sæti í þessu sterka móti.
Lið Veigars, East Tennessee State University, var hársbreidd frá sigri í liðakeppninni. ETSU lék á 12 höggum yfir pari og deildi öðru sætinu með gestgjöfunum frá Toledo, og voru einu höggi á eftir Auburn. Mótið var fyrsta mót tímabilsins hjá Veigari og ETSU.
Perla Sól Sigurbrandsdóttir vann sig inná Mason Rudolph Women’s Championship mótið sem fer fram dagana 18.-20. september á Vanderbilt Legends Club í Tennessee.
Frábær byrjun á tímabilinu hjá okkar kylfingum.




