Bryndís Eva Ágústsdóttir úr Golfklúbbi Akureyrar er stigameistari Unglingamótaraðarinnar 2026 í flokki 17-18 ára stúlkna.
Bryndís Eva tók þátt í öllum sjö mótum tímabilsins og safnaði samtals 4.747 stigum. Baráttan um titilinn var afar jöfn en aðeins 150 stig skildu að Bryndísi Evu og klúbbfélaga hennar Lilju Maren Jónsdóttur, sem varð önnur með 4.597 stig. Pamela Ósk Hjaltadóttir úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar varð þriðja með 4.497 stig.

Bryndís Eva endaði önnur í fyrsta móti tímabilsins í Þorlákshöfn. Hún lék hringina þrjá á 73, 70 og 73 höggum og lauk leik á pari, fimm höggum á eftir Lilju Maren.
Í næsta móti, sem fram fór á Hlíðavelli hjá Golfklúbbi Mosfellsbæjar, varð Bryndís jöfn í öðru sæti í heildarkeppni 15-18 ára stúlkna. Hún lék á 75, 70 og 73 höggum.
Bryndís Eva fagnaði sigri í Icewear-bikarnum hjá GKG. Hún lék hringina þrjá á 70, 73 og 75 höggum og lauk leik á fimm höggum yfir pari. Hún sigraði mótið með tíu högga mun.
Hún lék einnig vel á Jaðarsvelli á Akureyri. Þar lék hún á 76, 74 og 76 höggum og varð önnur í mótinu á 13 höggum yfir pari. Embla Hrönn Hallsdóttir sigraði, en hún endaði sex höggum á undan Bryndísi.
Á Íslandsmótinu í holukeppni á Selfossi tryggði Bryndís Eva sér bronsverðlaun í flokki 17-18 ára. Hún hafði betur gegn Lilju Maren í leiknum um þriðja sætið.
Bryndís varð jöfn í öðru sæti 17-18 ára stúlkna á Íslandsmótinu í höggleik á Hvaleyrarvelli. Hún lék hringina þrjá á 78, 73 og 79 höggum og lauk leik á fjórtán höggum yfir pari.
Í lokamóti tímabilsins, N1 Unglingamótinu á Korpúlfsstaðavelli, lék Bryndís Eva hringina þrjá á 83, 76 og 77 höggum. Hún varð jöfn í tíunda sæti mótsins í heild og í níunda sæti innan síns aldursflokks.
Bryndís Eva var í efstu þremur sætum flokksins í sex af sjö mótum tímabilsins og lék gott og stöðugt golf í sumar.





