Kristján Karl Guðjónsson úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar er stigameistari Unglingamótaraðar GSÍ 2026 í flokki 17-18 ára pilta.
Kristján Karl tók þátt í öllum sjö mótum tímabilsins og safnaði alls 5.883 stigum. Gunnar Þór Heimisson úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar varð annar með 5.225 stig og klúbbfélagi hans Arnar Daði Svavarsson þriðji með 4.978 stig.

Kristján Karl vann þrjú mót á tímabilinu í flokki pilta á aldrinum 15-18 ára og varð í öðru sæti á báðum Íslandsmótum sumarsins.
Hann hóf tímabilið með yfirburðasigri í Þorlákshöfn. Kristján lék hringina þrjá á 65, 64 og 66 höggum og lauk keppni á 21 höggi undir pari.
Á næsta móti, sem fram fór á Hlíðavelli hjá Golfklúbbi Mosfellsbæjar, lék Kristján á 66, 69 og 73 höggum. Hann varð jafn í fjórða sæti mótsins á fimm höggum undir pari og deildi öðru sætinu innan síns aldursflokks.
Annar sigur tímabilsins kom í Icewear-bikarnum hjá GKG. Kristján lék hringina þrjá á 71, 68 og 73 höggum og sigraði á einu höggi undir pari.
Kristján hélt áfram góðu gengi á móti Unglingamótaraðarinnar á Jaðarsvelli á Akureyri. Þar lék hann á 68, 75 og 69 höggum og sigraði mótið á einu höggi undir pari. Kristján vann með sjö höggum og sótti þar sinn þriðja sigur sumarsins.
Á Íslandsmótinu í holukeppni á Selfossi komst Kristján alla leið í úrslitaleikinn. Þar mætti hann Gunnari Þór Heimissyni í jöfnum leik sem réðst ekki fyrr en á lokaholunni. Gunnar hafði betur, 1/0, og Kristján varð því annar.
Kristján varð einnig annar á Íslandsmótinu í höggleik á Hvaleyrarvelli. Hann lék hringina þrjá á 73, 71 og 75 höggum og lauk leik á þremur yfir pari. Arnar Daði Svavarsson varð Íslandsmeistari, fjórum höggum á undan Kristjáni.
Í lokamóti tímabilsins, N1 Unglingamótinu á Korpúlfsstaðavelli, lék Kristján á 222 höggum. Hann varð jafn í ellefta sæti mótsins og jafn í fjórða sæti meðal keppenda í flokki 17-18 ára.





